07:03
Morgunútvarpið
Hvað með börnin í Breiðholti,borað í Laugardal,formaður Vár á Seyðisfirði og Birna bjargar jólunum

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Hanna Katrín Friðriksson var á línunni í Morgunútvarpinu í gær að ræða um væntanlegt laxeldi í Seyðisfirði. Fyrirtækið Kaldvík hefur fengið rekstrarleyfi fyrir laxeldinu en Benedikta Guðrún Svavarsdóttir, formaður Vár sem berst gegn laxeldinu, segir að formlegt samtal við Seyðfirðinga hafi ekki átt sér stað þrátt fyrir andstöðu þeirra við komu laxeldis. Kaldvík segist hafa átt í góðum samskiptum við sveitarfélagið. Við heyrðum í Benediktu.

Risavaxinn bor verður fluttur að næturlagi inn í Reykjavík á næstu dögum. Þetta hljómar grunsamlega en á sér eðlilegar skýringar því nú stendur til að bora eftir heitu vatni í Laugardag til að tryggja hitaveitu fyrir vaxandi samfélag. Laugarnes og Laugardalur eiga sérstakan sess í sögu hitaveitunnar í Reykjavík og jarðhiti á svæðinu hefur yljað Reykvíkingum í nær heila öld. Níu borholur eru nú þegar í notkun á svæðinu.Brynja Ragnarsdóttir, forstöðukona vatnsmiðla hjá Veitum, mætti til okkar.

Brynjar Karl Sigurðsson körfuboltaþjálfari segir embættismenn Reykjavíkurborgar reyna að bola íþróttafélaginu Aþenu út úr íþróttahúsinu Austurbergi. Fulltrúi Miðflokksins í íþrótta og útilífsráð lagði til á föstudag að samið yrði við Aþenu á ný en íþróttasviðið segir samningsmál vera í rýni. Brynjar Karl bendir á að 11 börn úr efra-Breiðholti hafi nýtt aðstöðuna í Austurbergi fyrir fjórum árum en segir iðkendafjölda Aþenu stefna í 200. Þarna eru börn sem búa við við fátækt og lítinn félagslegan stuðning, segir Brynjar Karl sem kom til okkar.

Leikkonan og grínistinn Birna Rún Eiríksdóttir snýr fljótlega aftur með nýtt uppistand: Birna bjarga jólunum. Birna sló rækilega í gegn með sýningunni Bremsulaus og er þekkt fyrir hispursleysi, beittan húmor og kraftmikla sviðsframkomu. Birna bakkaði inn í Morgunútvarpið með fullt skott af gríni.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 50 mín.
,