12:42
Þetta helst
Tímakaup Wolt-sendla

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Þegar talað er um tímakaup Wolt-sendla á Íslandi er ekki verið að tala um tímakaup í sömu merkingu og flestir leggja í þetta orð. Tímakaup Wolt-sendla er tengt því hversu margar sendingar þeir fá beiðnir um að fara og hversu margar þeir samþykkja.

Wolt sendlar geta fengið 0 krónur á tímann þrátt fyrir að þeir séu að keyra um merktir Wolt, skráðir inn í kerfið þar sem þeir fá sendingar og bíða eftir því að þeir fá slíkar sendingar.

Arnhildur Hálfdánardóttir útvarpskona á Rás 1 fjallar um þetta og veruleika Wolt-sendla á Íslandi í útvarpsþættinum Þetta nútímalíf: Á rúntinum með Wolt-sendli: Allt sem ég lærði á því að vinna fyrir algóriþmann

Rætt er við Arnhildi um Wolt í þætti dagsins.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 15 mín.
    ,