12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 12. október 2026

Útvarpsfréttir.

Rússar gerðu árás á orkuinnviði í Úkraínu í gær og í nótt. Forseti Úkraínu segir að slíkum árásum verði svarað þrátt fyrir orkuvopnahlé sem forseti Bandaríkjanna tilkynnti um í gær.

Vonskuveðurs er að vænta á miðvikudag og verður líklega gefin út gul og jafnvel appelsínugul viðvörun.

Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar á bráðalegudeildum lyf- og skurðlækninga á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri eru fjörutíu prósent færri en æskilegt er samkvæmt skýrslu heilbrigðisráðuneytisins.

Innflutningur á kjöti hefur stóraukist á síðustu árum. Á fyrstu sjö mánuðum þessa árs var flutt inn 14 prósentum meira af kjöti en á sama tíma í fyrra

Um 200 nemendur við Háskólann á Bifröst gátu ekki þreytt próf á fimmtudag vegna tæknibilunar í prófakerfi skólans. Rektor segir flesta hafa sýnt aðstæðunum skilning.

Ísland leikur seinni umspilsleik sinn gegn Króatíu um sæti á HM kvenna í fótbolta 2027 á morgun. Ísland er í góðri stöðu eftir stórsigur í fyrri leiknum.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 22 mín.
    ,