07:03
Morgunvaktin
Kaldastríðið og fjörutíu ár frá leiðtogafundinum í Höfða

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Fjörutíu ár eru liðin frá fundi leiðtoga Bandaríkjanna og Sovétríkjanna í Höfða í Reykjavík. Um fundinn og Kalda stríðið hefur Rósa Magnúsdóttir, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands, skrifað bókina Kaldastríðsborg. Rósa ræddi fundinn og ástandið í heiminum og í Reykjavík á þessu tímabili.

Björn Malmquist fréttamaður fór yfir það helsta í Evrópupólitíkinni í spjalli eftir Morgunfréttir. Hann ræddi líka við Hildi Guðnadóttur tónskáld sem var heiðruð fyrir verk sín á alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Gent í Belgíu um helgina.

Betrun nefnist ný þáttaröð Guðrúnar Hálfdánardóttur á Rás 1. Hún fjallar um málefni fanga í nútíð og fortíð. Sagan hefst í Kaupmannahöfn en þangað voru íslenskir sakamenn sendir til afplánunar á átjándu og nítjándu öld. Mörgum var þrælað út í erfiðisvinnu og óvísst er hve margir snéru heim.

Tónlist:

California - Joni Mitchell,

Talað við gluggann - Bubbi Morthens,

12 hours before - Hildur Guðnadóttir,

Tusind stykker - Anne Linnet,

Pump room - Hildur Guðnadóttir.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 1 klst. 55 mín.
    ,