12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 8. maí 2026

Útvarpsfréttir.

Starfsfólk á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara hefur gert 23 skriflegar athugasemdir við notkun Heiðu Bjargar Hilmisdóttur borgarstjóra á innkaupakorti sem hún hefur til umráða. Hún hefur ítrekað verið minnt á reglur um notkun kortsins.

Drög að frumvarpi um rannsóknarnefnd um Bakkakot og fleiri vistheimili eru væntanleg. Lögmaður 30 manna sem voru vistaðir í Bakkakoti átti fund með skrifstofustjóra forsætisráðuneytisins.

Breski Verkamannaflokkurinn hlaut slæma útreið í sveitarstjórnarkosningum í gær. Talningu er ekki lokið. Umbótaflokkurinn bætir verulega við sig og leiðtogi hans segir niðurstöðuna til marks um sögulegar breytingar í stjórnmálum.

Bandaríkjaforseti segir vopnahlé Bandaríkjanna og Írans enn í fullu gildi þrátt fyrir árásir á báða bóga í gær.

Formaður BSRB segir að fólki, sem nýti fulla vistun barna í leikskóla, sé refsað fjárhagslega. Leikskólagjöld hafa hækkað og lokunardögum fjölgað á kjörtímabilinu.

Blöndulína 3 verður lögð í jarðstreng gegnum bæjarland Akureyrar um leið og kostur gefst. Þetta kemur fram í nýjum samningi Akureyrar og Landsnets

Háskóli Íslands fór betur út úr árás á námsumsjónarkerfið Canvas en margir aðrir háskólar að sögn kennslustjóra. Kerfið lá niðri um tíma eftir netárás í gærkvöld.

David Attenborough, einn þekktasti sjónvarpsmaður heims, er hundrað ára í dag. Hann sá fyrir sér rólegan dag en ýmsir viðburðir verða í heimalandi hans, Bretlandi, í tilefni dagsins.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 22 mín.
,