07:03
Morgunútvarpið
Áhrif millilandaflugs á norðurland,Fenris Creation,Sketsagerðin og fréttir vikunnar

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þóroddur Bjarnason hefur lokið viðamikilli rannsókn á áhrifum millilandaflugs um Akureyrarflugvöll á samfélag og atvinnulíf. Hann kom til okkar í Morgunútvarpið og fór yfir allar 360 gráðurnar í þessu máli og ætlar svo klukkan tíu að fara yfir helstu niðurstöður rannsóknarinnar á rafrænum fundi á vegum markaðsstofu Norðurlands.

Grínhópur sem kallar sig Sketsgerðinni er að gera góða hluti á samfélagsmiðlum. Þessir drengir gera grín að öllu milli himins og jarðar, sem er kærkomið á þessum síðustu og verstu. Unnar Steinn Sigurðsson og Jóhann Ingi Eggertsson frá Sketsgerðinni kíktu til okkar í Morgunútvarpið í sprenghlægilegt spjall.

Íslendingar hafa á ný eignast meirihluta í tölvuleikjafyrirtækinu CCP. Google hefur keypt hlut í fyrirtækinu og stefnir á að þróa gervigreindarlíkön í tölvuleiknum EVE. Eftir viðskiptin heitir CCP Fenris Creations. Hilmar Veigar Pétursson er einn stofnenda fyrirtækisins og hefur leitt hóp fjárfesta við að kaupa það aftur. Hann verður áfram forstjóri þess og kom til okkar í Morgunútvarpið.

Tíðindarík vika að baki við fengum til okkar blaðmennina Sonju Sif Þórólfsdóttur frá Morgunblaðinu og Odd Ævar Gunnarsson frá Vísi til að fara yfir fréttir vikunnar með okkur.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 50 mín.
,