Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Við byrjuðum í Múlaþingi en Hólmfríður María er stödd fyrir austan og við heyrðum viðtal við Skírni Óðinsson íbúa þar og Bjarka Borgþórsson íbúa á Seyðisfirði.
Stríðsátök í Mið-Austurlöndum og hækkandi eldsneytisverð hafa enn á ný undirstrikað hversu viðkvæmt flugrekstrarumhverfið er fyrir óvissu í heiminum. Í fréttum vikunnar kom meðal annars fram að Icelandair hyggist draga úr flugframboði um fimm prósent í haust til að bregðast við hækkandi eldsneytisverði vegna átakanna við Persaflóa, ofan á áður boðaðan samdrátt í vor. Til að ræða þessa stöðu, áhrif hækkandi eldsneytisverðs og framtíð flugsins kom Tómas Ingason framkvæmdastjóri hjá Icelandair til okkar.
Á Íslandi falla til þúsundir tonna af textíl á hverju ári - en hvað ef hægt væri að umbreyta þeim úrgangi í verðmæta auðlind? Flöff er nýsköpunarfyrirtæki þar sem verið er byggja upp fyrstu íslensku textílendurvinnslustöðina þar sem textílúrgangur fær nýtt líf sem nýr efniviður og hljóðdempandi lausnir. Verkefnið sameinar sjálfbærni, nýsköpun og íslenska hönnun með það að markmiði að skapa raunverulegt hringrásarkerfi fyrir textíl á Íslandi. Ólöf Sigríður Jóhannsdóttir og Sæunn Kjartansdóttir, fatahönnuðir, komu til okkar.
Við fylgjum fréttastofunni að með því að heyra í íbúum þeirra sveitafélaga sem takast á umræðum um sveitastjórnarkosningar á ruv í kvöld og nú er komið að Ölfus, þar býr Ágústa Ragnarsdóttir sem er myndlistarkennari, formaður lúðrasveitarinnar og ýmislegt fleira - við hringdum í hana.
Í dag eru liðin 100 ár frá fæðingu David Attenborough, eins áhrifamesta náttúrufræðings og sögumanns samtímans. Í gegnum heimildarmyndir sínar hefur hann vakið athygli heimsins á fegurð náttúrunnar og mikilvægi þess að vernda hana. Í tilefni af afmælinu ætlar Hafdís Hanna Ægisdóttir forstöðumaður Sjálfbærnistofnunar HÍ að koma til okkar og ræða þennan merkilega mann.
Ljósið, endurhæfingar-og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þess, eru í næstu viku að fara af stað með fjáröflunarverkefni í samstarfi við Hlín Reykdal skartgripahönnuð. Verið er að safna fyrir nýjum tækjum og aðbúnaði í endurhæfingastarfið en Ljósið er að flytja í stærra húsnæði í haust. Þær Erna Magnúsdóttir, framkvæmdastýra Ljóssins, og Hlín Reykdal, skartgripahönnuður, komu til okkar.
Rangárþing ytra og eystra halda á morgun Fjölmenningarhátíð þar sem íbúar kynna menningu sína í gegnum mat, tónlist, list og skemmtun. Við heyrum í Jóhanni G. Jóhannssyni, Íþrótta- og fjölmenningarfulltrúa á Hellu, sagði okkur frá þessu.
