Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Hönnunarmars stendur nú sem hæst. Meðal þess sem boðið er upp á eru leiðsagnir arkitekta um ýmis hús sem eru í byggingu, og sum hver kannski umdeild eins og stundum vill verða. Við spjölluðum um arkitektúr og skipulagsmál þegar arkitektarnir Andri Gunnar Lyngberg Andrésson hjá Trípólí, Halldóra Vífilsdóttir hjá Nordic Office of Architecture og Ögmundur Skarphéðinsson hjá Hornsteinum komu í þáttinn.
David Attenborough er 100 ára í dag og því er fagnað víða. Fáir hafa haft eins mikil áhrif á meðvitund um náttúruna og hann.
Magnús Lyngdal var á sínum stað með umfjöllun um sígilda tónlist. Í dag voru það barítón-raddir sem áttu sviðið.
Tónlist:
Emilíana Torrini - Today has been ok.
Emilíana Torrini - Miss Flower.
Sigur Rós - Hoppípolla.

07:30

08:30
Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Í september 1970 rændu liðsmenn Alþýðufylkingarinnar til frelsunar Palestínu fjórum farþegaþotum og stefndu þeim á gamlan herflugvöll í eyðimörk Jórdaníu. Fyrri þáttur af tveimur.

Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Eva Ruža Miljević er föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni. Eva er þekkt útvarpskona, sjónvarpskona, skemmtikraftur, stjörnufréttakona hjá K100, velgjörðarsendiherra SOS Barnaþorpanna á Íslandi og áhrifavaldur. Og ef allt þetta er ekki nóg þá er hún líka í veitingabransanum, en hú rekur ásamt eiginmannisínum Svarta kaffi. Við ferðuðumt með Evu aftur í tímann, til Króatíu, en faðir hennar er þaðan, svo í gegnum æskuárin þar sem kom fljótt í ljós að hún ætlaði sér að verða fræg og hafði snemma mikið sjálfstraust í því að koma fram.
Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Í dag héldum við áfram að skoða Eldhúsbókina gömlu og góðu, húsráð frá 1971 og fleira. Í framhaldi af því rifjuðum við upp þegar við vorum yngri og settum til dæmis brauð með skinku osti og tómatsósu í ofninn. Nostalgía og brauð í ofninn í matarspjalli dagsins.
Tónlist í þættinum í dag:
Fallegur dagur / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens)
Lucky / Britney Spears (Max Martin, Rami Yacoub & Alexander Kronlund)
Finesse / Bruno Mars (Bruno Mars, James Fauntleroy, Philip Lawrence, Brody Brown, Jeremy Reeves, Jonathan Yip, Ray Charles McCullough II & Ray Romulus)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Starfsfólk á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara hefur gert 23 skriflegar athugasemdir við notkun Heiðu Bjargar Hilmisdóttur borgarstjóra á innkaupakorti sem hún hefur til umráða. Hún hefur ítrekað verið minnt á reglur um notkun kortsins.
Drög að frumvarpi um rannsóknarnefnd um Bakkakot og fleiri vistheimili eru væntanleg. Lögmaður 30 manna sem voru vistaðir í Bakkakoti átti fund með skrifstofustjóra forsætisráðuneytisins.
Breski Verkamannaflokkurinn hlaut slæma útreið í sveitarstjórnarkosningum í gær. Talningu er ekki lokið. Umbótaflokkurinn bætir verulega við sig og leiðtogi hans segir niðurstöðuna til marks um sögulegar breytingar í stjórnmálum.
Bandaríkjaforseti segir vopnahlé Bandaríkjanna og Írans enn í fullu gildi þrátt fyrir árásir á báða bóga í gær.
Formaður BSRB segir að fólki, sem nýti fulla vistun barna í leikskóla, sé refsað fjárhagslega. Leikskólagjöld hafa hækkað og lokunardögum fjölgað á kjörtímabilinu.
Blöndulína 3 verður lögð í jarðstreng gegnum bæjarland Akureyrar um leið og kostur gefst. Þetta kemur fram í nýjum samningi Akureyrar og Landsnets
Háskóli Íslands fór betur út úr árás á námsumsjónarkerfið Canvas en margir aðrir háskólar að sögn kennslustjóra. Kerfið lá niðri um tíma eftir netárás í gærkvöld.
David Attenborough, einn þekktasti sjónvarpsmaður heims, er hundrað ára í dag. Hann sá fyrir sér rólegan dag en ýmsir viðburðir verða í heimalandi hans, Bretlandi, í tilefni dagsins.
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Við höldum áfram umræðu um sveitarstjórnarmál í þætti dagsins - enda stutt í kosningar - og rýnum í dag í mögulegan meirihluta í borginni út frá skoðanakönnunum og kosningaprófi RÚV, sem opnað var almenningi í upphafi vikunnar. Rætt er við Stíg Helgason, ritstjóra kosningaumfjöllunar RÚV, og Hafstein Einarsson, nýdoktor í stjórnmálafræði.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Pétur Magnússon hittir fólk þar sem það er statt.
Dagsbirta er mikilvæg. Engu að síður byggjum við stundum rými þar sem hana skortir. Í dag heimsækjum við Hlíðarendahverfið í Reykjavík ásamt Páli Jakobi Líndal og ræðum við Önnu Sigríði Jóhannsdóttur, arkíktekt og sérfræðing í dagsbirtu í byggðu umhverfi.

Veraldarvefur tónlistarinnar. Lagasyrpur héðan og þaðan úr víðri veröld.
Mahi musicians of Benin - Cengunmé.
Listafólk frá Kamerún - Music for the Buma dance.
Funkees, The - Dancing time.
Aga, Alèmu - Abatatchen hoy - Pater noster.
Waaberi, Mursal, Maryam - Rog rogosho = Changing.
Marhours, Ahmad, Achkar, Ely, Masry, Hussein el, Badoui, Hatem - Saqqarah nights.
Banna, Rim - The first rain.
Xiaolian, Dai - Liushui = Flowing waters.
Charlo - El cantar de los reseros.
Cuevas, Sergio - Golpe llanero.
Baptista, Cyro, Braga, Paulo, Matta, Nilson, Castro-Neves, Oscar, Ma, Yo-Yo, Alves, Helio - Apelo.
Deyhim, Sussan - Negara = Mesmerizes mirror.
Við heyrum aftur sögurnar sem sagðar voru í þáttaröðinni Sögum af landi, sem var á dagskrá Rásar 1 frá árinu 2015-2023. Þar var flakkað um landið, rætt við fólk sem hafði sögur að segja, kynntir voru áhugaverðir staðir og fréttamál líðandi stundar skoðuð - oft með nýjum augum. Efni í þættina unnu frétta- og dagskrárgerðarfólk RÚV um allt land.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.
Vínill vikunnar í þetta sinn er hljómplatan Rain Town með skosku hljómsveitinni Deacon Blue. Deacon Blue var stofnuð í Glasgow árið 1985. Nafn hljómsveitarinnar kemur úr titli lagsins Deacon Blues með hljómsveitinni Steely Dan. Ricky Ross, söngvari og aðallagahöfundur stofnaði sveitina eftir að hann flutti frá Dundee til Glasgow og fékk til liðs við sig Lorraine McIntosh, James Prime, Dougie Vipond, Ewen Vernal og Graeme Kelling. Hljómsveitin sendi frá sér sína fyrstu plötu, Raintown, árið 1987 og náði hún talsverðum vinsældum. Sú plata er vínill vikunnar í þetta sinn. Titill plötunnar vísar til borgarinnar Glasgow og efni texta Ross voru glíman við hversdagslífið í borginni. Platan náði talsverðum vinsældum, náði hæst í 14. sæti breska vinsældarlistans og var á listanum í eitt og hálft ár.
Við hlýddum á A hlið plötunnar í heild, þar hljóma lögin í þessari röð:
Born in a Storm
Raintown
Ragman
He Looks Like Spencer Tracy Now
Loaded
When will You (Make My Telephone Ring)
Og svo var það B hlið plötunnar í heild, lögin hljóma í þessari röð:
Chocolate Girl
Dignity
The Very Thing
Love's Great Fears
Town to Be Blamed
Hljómsveitin hætti árið 1994 eftir ágætis gengi, en tók svo aftur saman um það bil áratug síðar og starfar enn. Í fyrra sendu þau frá sér sína elleftu plötu og hljómsveitin kemur reglulega fram á tónleikum. Þau Ricky og Lorraine giftust árið 1990 og eru enn gift.
Við enduðum þennan þátt á því að heyra tvö aukalög með hljómsveitinni, fyrst þeirra vinsælasta lag, Real Gone Kid frá árinu 1989 og svo Fergus Sings the Blues en bæði lögin voru á annarri hljómplötu sveitarinnar When the World Knows Your Name sem kom út árið 1989.
Rætt um menningarvikuna sem er að líða og það sem er efst á baugi og framundan um helgina.
Viðmælendur Önnu Maríu Björnsdóttur eru að þessu sinni Anna Róshildur Benediktsdóttir Böving, tónlistarkona og sviðshöfundur, Bergdís Júlía Jóhannsdóttir, leikkona og leikstjóri og Sigríður Sigurjónsdóttir forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands.
Fjallað var um sjónvarpsþættina Tuttugu & eitthvað, barnamenningu og Hönnunarmars.
Oddvitar allra framboða til sveitastjórna mætast í umræðuþætti í aðdraganda kosninga 2026.
Fimm listar eru í framboði í Múlaþingi til sveitarstjórnarkosninga í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Jónína Brynjólfsdóttir, Framsóknarflokki, Berglind Harpa Svavarsdóttir, Sjálfstæðisflokki, Hólmfríður Rut Einarsdóttir, Austurlistanum og Viðreisn, Lárus Bjarnason, Miðflokki og Ásrún Mjöll Stefánsdóttir, Vinstrihreyfingunni-grænu framboði og óháðum.
Oddvitar allra framboða til sveitastjórna mætast í umræðuþætti í aðdraganda kosninga 2026.
Tveir listar eru í framboði í Ölfusi til sveitarstjórnarkosninga í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Grétar Ingi Erlendsson, Sjálfstæðisflokki, og Gunnsteinn R. Ómarsson, Samfylkingu og félögum.

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Fyrsti þáttur af sex þar sem leikin eru lög sem hafa verið samin við ljóð Davíðs Stefánssonar. Að þessu sinni eru ljóð úr fyrstu ljóðabók hans, Svörtum fjöðrum, í forgrunni en sú bók var gefin út árið 1919. Graduale Futuri syngur um Ekkilinn, Hreinn Líndal syngur lag Karls O. Runólfssonar við Allar vildu meyjarnar, M.A. kvartettinn syngur Rokkarnir eru þagnaðir, Björgvin Halldórsson syngur Mamma ætlar að sofna, Smárakvartettinn á Akureyrir syngur lag Friðriks Bjarnasonar við ljóðið Abba-labba-lá og tvíeykið Þau flytja eigið lag við þetta sama kvæði. Savanna tríóið flytur lög Þóris Baldurssonar við ljóðin Brúðarskórnir og Á Dökkumiðum, Sunna Ingólfsdóttir og Ingólfur Steinsson syngja lög Ingólfs við ljóðin Á Dökkumiðum og Komdu. Lokalagið er Eldur í öskunni leynist eftir Hjördísi Pétursdóttur. Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Pétur Magnússon hittir fólk þar sem það er statt.
Dagsbirta er mikilvæg. Engu að síður byggjum við stundum rými þar sem hana skortir. Í dag heimsækjum við Hlíðarendahverfið í Reykjavík ásamt Páli Jakobi Líndal og ræðum við Önnu Sigríði Jóhannsdóttur, arkíktekt og sérfræðing í dagsbirtu í byggðu umhverfi.
Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar. Þórbergur Þórðarson skráði. Pétur Pétursson les í hljóðritun frá 1988
Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar. Fagurt mannlíf. Þórbergur Þórðarson skráði. Pétur Pétursson byrjar lesturinn.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 15. apríl 1988.

frá Veðurstofu Íslands
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Eva Ruža Miljević er föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni. Eva er þekkt útvarpskona, sjónvarpskona, skemmtikraftur, stjörnufréttakona hjá K100, velgjörðarsendiherra SOS Barnaþorpanna á Íslandi og áhrifavaldur. Og ef allt þetta er ekki nóg þá er hún líka í veitingabransanum, en hú rekur ásamt eiginmannisínum Svarta kaffi. Við ferðuðumt með Evu aftur í tímann, til Króatíu, en faðir hennar er þaðan, svo í gegnum æskuárin þar sem kom fljótt í ljós að hún ætlaði sér að verða fræg og hafði snemma mikið sjálfstraust í því að koma fram.
Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Í dag héldum við áfram að skoða Eldhúsbókina gömlu og góðu, húsráð frá 1971 og fleira. Í framhaldi af því rifjuðum við upp þegar við vorum yngri og settum til dæmis brauð með skinku osti og tómatsósu í ofninn. Nostalgía og brauð í ofninn í matarspjalli dagsins.
Tónlist í þættinum í dag:
Fallegur dagur / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens)
Lucky / Britney Spears (Max Martin, Rami Yacoub & Alexander Kronlund)
Finesse / Bruno Mars (Bruno Mars, James Fauntleroy, Philip Lawrence, Brody Brown, Jeremy Reeves, Jonathan Yip, Ray Charles McCullough II & Ray Romulus)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Rætt um menningarvikuna sem er að líða og það sem er efst á baugi og framundan um helgina.
Viðmælendur Önnu Maríu Björnsdóttur eru að þessu sinni Anna Róshildur Benediktsdóttir Böving, tónlistarkona og sviðshöfundur, Bergdís Júlía Jóhannsdóttir, leikkona og leikstjóri og Sigríður Sigurjónsdóttir forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands.
Fjallað var um sjónvarpsþættina Tuttugu & eitthvað, barnamenningu og Hönnunarmars.

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Þóroddur Bjarnason hefur lokið viðamikilli rannsókn á áhrifum millilandaflugs um Akureyrarflugvöll á samfélag og atvinnulíf. Hann kom til okkar í Morgunútvarpið og fór yfir allar 360 gráðurnar í þessu máli og ætlar svo klukkan tíu að fara yfir helstu niðurstöður rannsóknarinnar á rafrænum fundi á vegum markaðsstofu Norðurlands.
Grínhópur sem kallar sig Sketsgerðinni er að gera góða hluti á samfélagsmiðlum. Þessir drengir gera grín að öllu milli himins og jarðar, sem er kærkomið á þessum síðustu og verstu. Unnar Steinn Sigurðsson og Jóhann Ingi Eggertsson frá Sketsgerðinni kíktu til okkar í Morgunútvarpið í sprenghlægilegt spjall.
Íslendingar hafa á ný eignast meirihluta í tölvuleikjafyrirtækinu CCP. Google hefur keypt hlut í fyrirtækinu og stefnir á að þróa gervigreindarlíkön í tölvuleiknum EVE. Eftir viðskiptin heitir CCP Fenris Creations. Hilmar Veigar Pétursson er einn stofnenda fyrirtækisins og hefur leitt hóp fjárfesta við að kaupa það aftur. Hann verður áfram forstjóri þess og kom til okkar í Morgunútvarpið.
Tíðindarík vika að baki við fengum til okkar blaðmennina Sonju Sif Þórólfsdóttur frá Morgunblaðinu og Odd Ævar Gunnarsson frá Vísi til að fara yfir fréttir vikunnar með okkur.

07:30

08:30
Létt spjall og lögin við vinnuna.
Morgunverkin voru lauflétt á bárunni á þessum föstudegi, talað var um fjölbragðarglímu, Snoop Dogg, afmælisbarn dagsins sem var Philip Bailey og L7! Lagalisti fólksins var skrautlegur og góður, enda var hann þemalaus.
Lagalisti þáttarins:
SPRENGJUHÖLLIN – Keyrum yfir Ísland
GREEN DAY – Warning
PHILIP BAILEY WITH PHIL COLLINS – Easy Lover
EARTH WIND & FIRE – September
GORILLAZ – Dare
LANGI SELI OG SKUGGARNIR – Breiðholtsbúgí
THE DOORS – People are strange
EN VOGUE – Whatta Man
LAURYN HILL – Doo wop (that thing)
SNOOP DOGGY DOGG – Doggy Dogg World
ARETHA FRANKLIN – Think
LORDE – Royals
BJÖRGVIN HALLDÓRSSON – Sendu Nú Gullvagninn
RETRO STEFSON – Minning
FM BELFAST – I Don't Want To Go To Sleep Either
DIGITAL ÍSLAND – Eh plan?
EUROPE – The Final Countdown
L7 – Pretend we're dead
ABBA – S.O.S.
ARCADE FIRE – We Exist
STRANGLERS – Always the sun
SOUL ASYLUM – Runaway train
SYKURMOLARNIR – Regina
U2 – Elevation
MOSES HIGHTOWER – Ráðahagur
BJARTMAR GUÐLAUGSSON – Tólftommutöffarar
STUÐMENN – Hringur og Bítlagæslumennirnir
TERENCE TRENT D'ARBY – Wishing Well
BENTLEY RHYTHM ACE – Bentleys gonna sort you out
IVAR KLAUSEN – Lucky me
HREIMUR, MAGNI, BERGSVEINN OG GRETTISKÓRINN – Lífið er yndislegt
VALDIMAR GUÐMUNDS – The winner takes it all (LIVE Diskóblik í auga 2018)
RÚNAR JÚLÍUSSON OG UNUN – Hann Mun Aldrei Gleym'enni
Á MÓTI SÓL – Stelpur
TERRY JACKS – Seasons in the Sun
DAVID BOWIE – Scary Monsters (And Super Creeps)
MAUS – 90 kr. perla
HELGI BJÖRNSSON – Yndi Indy
KILLING JOKE – Eighties
NÝDÖNSK – Ilmur
MEDINA – Kun for mig
JAN HAMMER GROUP - Don´t you know

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Starfsfólk á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara hefur gert 23 skriflegar athugasemdir við notkun Heiðu Bjargar Hilmisdóttur borgarstjóra á innkaupakorti sem hún hefur til umráða. Hún hefur ítrekað verið minnt á reglur um notkun kortsins.
Drög að frumvarpi um rannsóknarnefnd um Bakkakot og fleiri vistheimili eru væntanleg. Lögmaður 30 manna sem voru vistaðir í Bakkakoti átti fund með skrifstofustjóra forsætisráðuneytisins.
Breski Verkamannaflokkurinn hlaut slæma útreið í sveitarstjórnarkosningum í gær. Talningu er ekki lokið. Umbótaflokkurinn bætir verulega við sig og leiðtogi hans segir niðurstöðuna til marks um sögulegar breytingar í stjórnmálum.
Bandaríkjaforseti segir vopnahlé Bandaríkjanna og Írans enn í fullu gildi þrátt fyrir árásir á báða bóga í gær.
Formaður BSRB segir að fólki, sem nýti fulla vistun barna í leikskóla, sé refsað fjárhagslega. Leikskólagjöld hafa hækkað og lokunardögum fjölgað á kjörtímabilinu.
Blöndulína 3 verður lögð í jarðstreng gegnum bæjarland Akureyrar um leið og kostur gefst. Þetta kemur fram í nýjum samningi Akureyrar og Landsnets
Háskóli Íslands fór betur út úr árás á námsumsjónarkerfið Canvas en margir aðrir háskólar að sögn kennslustjóra. Kerfið lá niðri um tíma eftir netárás í gærkvöld.
David Attenborough, einn þekktasti sjónvarpsmaður heims, er hundrað ára í dag. Hann sá fyrir sér rólegan dag en ýmsir viðburðir verða í heimalandi hans, Bretlandi, í tilefni dagsins.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Mjög góð stemning í Popplandi dagsins, Lovísa sat við hljóðnemann og spilaði tónlist úr öllum áttum. Nýtt og gamalt í bland, upphitun fyrir Partýverkin og þessar helstu tónlistarfréttir.
Kiriyama Family - Weekends.
PULP - Common People '96.
Ivar Klausen - Dreamer.
CRISTOPHER CROSS - All Right.
Daniil, Frumburður - Bráðna.
sombr - Potential.
Styles, Harry - American Girls.
Daði Freyr Pétursson - P.E.R.F.E.C.T..
MGMT - Time To Pretend.
Daði Freyr Pétursson - Hot damn.
FOXYGEN - San Francisco.
ISLEY BROTHERS - That Lady.
Fender, Sam - Rein Me In.
Náttsól - Flýttu þér hægt.
Dean, Olivia - Rein Me In.
Larsson, Zara, PinkPantheress - Midnight sun (Girls trip).
TAME IMPALA - Borderline.
Þormóður Eiríksson, Alaska1867, Maron Birnir Reynisson - Stoppa tímann.
VÖK - Waterfall.
Role Model - Sally, When The Wine Runs Out.
Bombay Bicycle Club - Always Like This.
Superserious - Island full of deadbeats (..OR SOMETHING).
Árný Margrét - Hakk og spaghettí.
Musgraves, Kacey - Dry Spell.
Laufey - Madwoman.
Rosalia - La Perla (Explicit).
Rosalia - Reliquia.
Yahritza y su Esencia - La Perla (Explicit).
KK - Lífið er.
Bubbi Morthens - Við föllum.
U2 - Songs Of The Future.
GRAFÍK - Bláir fuglar.
Nýdönsk - Fyrsta skiptið.
Creature of Habit - Myrká.
Death Cab for Cutie - Riptides.
Kingfishr - The Blade.
Teitur Magnússon Tónlistarmaður - Gullauga.
STARSHIP - We Built This City.
Flott - Tuttugu og eitthvað.
CUTTING CREW - (I Just) Died In Your Arms.
Birnir, GusGus - Walk away.
ISSI - Bararara.
HERRA HNETUSMJÖR - Ég myndi líka hata mig.
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Við byrjuðum í Múlaþingi en Hólmfríður María er stödd fyrir austan og við heyrðum viðtal við Skírni Óðinsson íbúa þar og Bjarka Borgþórsson íbúa á Seyðisfirði.
Stríðsátök í Mið-Austurlöndum og hækkandi eldsneytisverð hafa enn á ný undirstrikað hversu viðkvæmt flugrekstrarumhverfið er fyrir óvissu í heiminum. Í fréttum vikunnar kom meðal annars fram að Icelandair hyggist draga úr flugframboði um fimm prósent í haust til að bregðast við hækkandi eldsneytisverði vegna átakanna við Persaflóa, ofan á áður boðaðan samdrátt í vor. Til að ræða þessa stöðu, áhrif hækkandi eldsneytisverðs og framtíð flugsins kom Tómas Ingason framkvæmdastjóri hjá Icelandair til okkar.
Á Íslandi falla til þúsundir tonna af textíl á hverju ári - en hvað ef hægt væri að umbreyta þeim úrgangi í verðmæta auðlind? Flöff er nýsköpunarfyrirtæki þar sem verið er byggja upp fyrstu íslensku textílendurvinnslustöðina þar sem textílúrgangur fær nýtt líf sem nýr efniviður og hljóðdempandi lausnir. Verkefnið sameinar sjálfbærni, nýsköpun og íslenska hönnun með það að markmiði að skapa raunverulegt hringrásarkerfi fyrir textíl á Íslandi. Ólöf Sigríður Jóhannsdóttir og Sæunn Kjartansdóttir, fatahönnuðir, komu til okkar.
Við fylgjum fréttastofunni að með því að heyra í íbúum þeirra sveitafélaga sem takast á umræðum um sveitastjórnarkosningar á ruv í kvöld og nú er komið að Ölfus, þar býr Ágústa Ragnarsdóttir sem er myndlistarkennari, formaður lúðrasveitarinnar og ýmislegt fleira - við hringdum í hana.
Í dag eru liðin 100 ár frá fæðingu David Attenborough, eins áhrifamesta náttúrufræðings og sögumanns samtímans. Í gegnum heimildarmyndir sínar hefur hann vakið athygli heimsins á fegurð náttúrunnar og mikilvægi þess að vernda hana. Í tilefni af afmælinu ætlar Hafdís Hanna Ægisdóttir forstöðumaður Sjálfbærnistofnunar HÍ að koma til okkar og ræða þennan merkilega mann.
Ljósið, endurhæfingar-og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þess, eru í næstu viku að fara af stað með fjáröflunarverkefni í samstarfi við Hlín Reykdal skartgripahönnuð. Verið er að safna fyrir nýjum tækjum og aðbúnaði í endurhæfingastarfið en Ljósið er að flytja í stærra húsnæði í haust. Þær Erna Magnúsdóttir, framkvæmdastýra Ljóssins, og Hlín Reykdal, skartgripahönnuður, komu til okkar.
Rangárþing ytra og eystra halda á morgun Fjölmenningarhátíð þar sem íbúar kynna menningu sína í gegnum mat, tónlist, list og skemmtun. Við heyrum í Jóhanni G. Jóhannssyni, Íþrótta- og fjölmenningarfulltrúa á Hellu, sagði okkur frá þessu.
Oddvitar allra framboða til sveitastjórna mætast í umræðuþætti í aðdraganda kosninga 2026.
Fimm listar eru í framboði í Múlaþingi til sveitarstjórnarkosninga í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Jónína Brynjólfsdóttir, Framsóknarflokki, Berglind Harpa Svavarsdóttir, Sjálfstæðisflokki, Hólmfríður Rut Einarsdóttir, Austurlistanum og Viðreisn, Lárus Bjarnason, Miðflokki og Ásrún Mjöll Stefánsdóttir, Vinstrihreyfingunni-grænu framboði og óháðum.
Oddvitar allra framboða til sveitastjórna mætast í umræðuþætti í aðdraganda kosninga 2026.
Tveir listar eru í framboði í Ölfusi til sveitarstjórnarkosninga í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Grétar Ingi Erlendsson, Sjálfstæðisflokki, og Gunnsteinn R. Ómarsson, Samfylkingu og félögum.

Fréttastofa RÚV.
Kletturinn sér um að koma þér í gírinn á föstudagskvöldum. Rokk er rauði þráðurinn í gegnum þáttinn í eins teygjanlegum skilningi og mögulegt er. Rokk, indie rokk, indie popp, dans-pönk, nýbylgja, alt-rokk, síðpönk og country verður á boðstólum í hrærigraut af stemmingu og straumum.
Umsjón: Karl Sölvi Sigurðsson.