Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Þrír dagar eru til kosninga og frambjóðendur sjálfsagt að velta fyrir sér hvernig þeir geta heillað óákveðna. Reynslan sýnir að dágóður hópur kjósenda bíður fram á síðustu stundu að ákveða sig. Í lögum um sveitarfélög segir að þau skuli vinna að sameiginlegum velferðarmálum íbúa, eftir því sem fært þykir á hverjum tíma. Við fórum á mannamáli yfir helstu verkefnin með Evu Marín Hlynsdóttur prófessor í stjórnmálafræði.
Dönsk mál voru svo til umfjöllunar þegar Borgþór Arngrímsson kom í þáttinn. Við ræddum um stjórnmál, samgöngur og storka. Náið er fylgst með storkapari og ungum þeirra í hægvarpi, sem hægt er að nálgast á storkene.dk.
Svo spjölluðum við um álfa og álfatrú. Fólkið á Litlu- og Stóru-Sandvík í Sandvíkurhreppi í Flóa hefur trúað á álfa í tvö hundruð ár og meira. Og hefur auðvitað fyrir því sínar ástæður. Lýður Pálsson sagnfræðingur sagði okkur sögur af álfum og mönnum.
Tónlist frá útsendingarlogg 2026-05-13
Ritchie Valens - Donna.
Dietrich Fischer Dieskau - Krákan.
Prins Póló, Moses Hightower - Maðkur í mysunni.

07:30

08:30

Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Við forvitnuðumst í dag um Uppskeruhátíð í verkefninu Umhverfisfréttafólk sem var á vegum Landverndar og Grænfánans, en hún fór fram í lok apríl. Á hverju ári berast fjölmörg vönduð og fjölbreytt verkefni í keppnina frá skólum víðsvegar á landinu. Í ár voru það m.a. rapplög, spil, myndbönd, hlaðvarp, fréttaskýringar, smásögur, dagatal, ljóð, listaverk, tímarit vöruhönnun og ljósmyndir. Við fengum Sigurlaugu Arnardóttur, verkefnastýru Menntateymis Landverndar til að segja okkur frá keppninni og hátíðinni og með henni komu Daney Emma Svansdóttir, fulltrúi hópsins úr Garðaskóla sem sigraði í flokki grunnskóla, og Húgó Heiðreksson, fulltrúa hópsins úr Tækniskólanum sem bar sigur úr býtum í flokki framhaldsskóla.
Svo kom Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjallið. Í dag sagði hún okkur frá finnskri rannsókn á áhrifum tónlistar á hreyfingu.
Svo kom Jónatan Garðarsson aftur til okkar í dag og hélt áfram að fræða okkur um íslenska tónlist og íslenskt tónlistarfólk. Í dag sagði hann okkur frá Magnúsi Ingimarssyni og hans merka starfi, en hann var einn þekktasti tónlistarmaður á Íslandi sem mestmegnis starfaði á bak við tjöldin, en hann var hljóðfæraleikari, hljómsveitastjóri, kórstjóri, laga- og textahöfundur, upptökustjóri en fyrst og fremst útsetjari sem flestir þekktustu tónlistarmenn landsins störfuðu með á sjöunda og áttunda áratugnum.
Tónlistin í þættinum:
Ó, ljúfa líf / Flosi Ólafsson (P. Doddoge, texti Flosi Ólafsson)
Marína / Sigrún Jónsdóttir (Rocco Granata, texti Magnús Ingimarsson)
Það er svo geggjað / Flosi Ólafsson (Magnús Ingimarsson, texti Flosi Ólafsson)
Sveitin milli sanda / Ellý Vilhjálms (Magnús Blöndal Jóhannsson)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Skortur á áhættumati, skriflegu verklagi og áætlunum er meðal þess sem starfshópur vegna jarðhræringanna á Reykjanesskaga setur út á. Viðbragðsaðilar hafi unnið þrekvirki og þeim að þakka að ekki fór verr.
Heilbrigðisráðherra Bretlands undirbýr afsögn og framboð í leiðtogasæti Verkamannaflokksins.
Fjórir af hverjum tíu foreldrum í aðildarfélögum ASÍ og BSRB eiga erfitt með að ná endum saman. Ný könnun sýnir mikinn mun á stöðu fólks eftir hjúskaparstöðu.
Rannsókn á innbroti í svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi, þar sem grísir drápust og dýr særðust, miðar ágætlega. Lögregla telur innbrotið skemmdarverk.
Mette Frederiksson hefur beðist afsökunar á orðum sínum, um að ef hún ætti ung börn vildi hún heldur að þau reyktu en að þau væru ein á samfélagsmiðlum.
Bandaríkjaforseti kemur til Kína í dag og býst við löngum samtölum við kollega sinn um stríðið við Íran.
Valskonur tryggðu sér í gærkvöld fjórða Íslandsmeistaratitilinn í röð í handbolta.
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Uppbygging á Blikastaðalandinu svokallaða sem er í eigu Arion banka er eitt af stóru málunum sem er til umræðu í Mosfellsbæ fyrir komandi sveitastjórnarkosningar. Þetta er 98 hektara óbyggt landsvæði sem liggur á milli Reykjavíkur og byggðarinnar í Mosfellsbæ.
Um er að ræða eitt stærsta, ef ekki stærsta, óbyggða byggingarland á Íslandi í dag eins og fjármálagreinandinn Alexander Hjálmarsson hjá ráðgjafafyrirtækinu Akki orðaði það í fyrra. Mosfellsbær hefur nú samþykkt fyrsta áfanga deiliskipulags svæðisins og kannar nú hvort selja eigi landið í heild sinni eða skrá það á markað. Til stendur að byggja 3500 til 3700 íbúðir á þessu landsvæði.
Rætt er við Þóru Hjaltested, settan bæjarstjóra í Mosfellssveit, um þessa uppbyggingu og fjallað um baksögu Blikastaðalandsins.
Þetta land var lykilatriði í dómsmáli um einkavæðingu Íslenskra aðalvertaka sem endaði með því að framkvæmd íslenska ríkisins á útboði fyrirtækisins var dæmd ólögmæt. Íslenska ríkið seldi Íslenska aðalvertaka á undirverði sem aðallega fólst í því að Blikastaðalandið var verðmetið á um 1/5 hluta af raunvirði í einkavæðingunni.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Gígja Hólmgeirsdóttir ferðast um landið og kemur víða við – í þéttbýli, dreifbýli, borg og bæjum – og kynnir sér hin ýmsu málefni á hverjum stað.
Í dag lítum við inn á opna vinnustofu sem var haldin á Akureyri í byrjun maí og bar titilinn „Menning og ferðaþjónusta á Norðurlandi“. Markmiðið með viðburðinum var að styrkja samstarf og samtal milli menningar- og ferðaþjónstuaðila á svæðinu.
Vinnustofan var á vegum Safnafræði við Háskóla Íslands, Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála, Félags íslenskra safna og safnafólks, Síldarminjasafnsins á Siglufirði og Samtaka ferðaþjónustunnar.
Viðmælendur: Guðrún Dröfn Whitehead, Vera Vilhjálmsdóttir, Dagrún Ósk Jónsdóttir, Helga Nína Helgadóttir, Halldór Óli Kjartansson, Katrín Harðardóttir, Steinunn María Sveinsdóttir, Haraldur Þór Egilsson og Jóhannes Þór Skúlason.
Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlist frá systurstöðvum rásar 1 í Evrópu.
Eistland, Finnland og Frakkland sendu okkur dæmi um það sem er á seyði í þeirra djasslöndum.
Eistneska tríóið Flow Rea er skipað þeim Mathei Florea á hljómborð, Joosep Talumaa á bassa og Dmitri Nikolajevski á slagverk. Þeir spila þrjú lög af plötunni Pulse, sem kom út 2025.
Allure
Circuit
Restless
Ricky Tick stórsveitin finnska og Julkinen Sala hópurininn - eða Hið opinbera - eins og hann gæti heitið á íslensku. Ljóðskáldin og rappararnir Karri Paleface Mietteinen, Tommy Lindgre og Fanni F Sjöholm skipa hann ásamt Valtteri Laurell Pöyhönen, gítarleikara, útsetjara og stórsveitarstjóra . (Myndin er af þeim).
Won't Do og Rico Suave Bossa Nova eru eftir rapparann og upptökustjórann J'Dilla. Lokalagið: Siel missä ei oo ennen oltu er eftir Julkinen Sala.
Frá Frakklandi kemur saxófónleikarinn og söngvarinn Pierre Carbonneaux, sem leiðir hljómsveitina L’autour sem þeir skipa með honum Benjamin Garson á gítar, Clement Merienne á píano, Antoine Leanardon á kontrabassa og Emilian Ducret á trommur. Við heyrðum þá taka til kostanna eigin hugleiðingar um söngvaskáldið sem þeir voru aldir upp við - George Brassens.
The Singing Train
Pauvre Martin
Og í lokin heyrum við í George Brassens sjálfum syngja eigið lag um orðsprið.
La mauvaise reputation
Hvernig horfum við á nútíðina og hvernig spáum við í framtíðina? Getum við litið til baka og greint fortíðina? Getum við komist að því hver viðhorf ungs fólks voru árið 1940? En árið 2011? Hvernig hafa hugmyndir fólks breyst á 50 árum? Og hvernig sér það þróunina fyrir sér næstu 50 ár?
Í þáttunum Kynslóðir mætast verður rætt við þrettán Íslendinga sem fæðast og alast upp á ólíkum tímum. Eldri viðmælendurnir eiga það sameiginlegt að hafa fæðst áður en Ísland varð lýðveldi og yngri viðmælendurnir fæddust allir eftir að Gleðibankinn var orðinn að klassík og Perlan að kennileiti í Reykjavík. Í eldri hópnum er yngsti viðmælandinn 73 ára og sá elsti 90 og í yngri hópnum er sá elsti 18 ára gamall og þeir yngstu 14 ára gamlir. Á milli elsta og yngstu viðmælendanna eru 76 ár.
Hvaða hugmyndir hafa þessir einstaklingar um menntun, störf, byggðarþróun, náttúruna, auðlindir, alþjóðamál, íslenska tungu og íslenskan mat? Hverju myndu þeir vilja breyta í íslensku samfélagi? Endurspegla tvær kynslóðir tvö ólík viðhorf? (Áður á dagskrá 2011)
Hvað eiga kynslóðirnar sameiginlegt? Hvað greinir þær að? Hvaða breytingar hafa orðið á hugmyndum fólks á hálfri öld? Hvernig sjá þessar tvær kynslóðir framtíðina fyrir sér? Umsjón: Gerður Jónsdóttir.
Í þriðja þætti Kynslóðir mætast svara viðmælendur þáttarins spurningum um Ísland og umheiminn. Hvaða aðgang höfðu Íslendingar að alþjóðaheiminum fyrir 60 árum síðan? Hvað með ungt fólk nú, þegar hægt er að fylgjast með því hvað er að gerast í alþjóðaheiminum í rauntíma, sitjandi út í móa með símann fyrir framan sig? Skiptir máli fyrir ungt fólk að fylgjast með því sem gerist utan landsteinanna? Hver verður staða Íslands eftir 50 ár? Munum við halda sjálfstæði okkar? Hvernig mun tungumálið okkar þróast?
Þátturinn var fyrst á dagskrá 25. september 2011.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
Í Víðsjá dagsins höldum við áfram með bókaklúbbinn okkar; Aldrei las ég Laxness. Skáldsaga dagsins er stórvirkið Salka Valka sem kom út í tveimur bindum árin 1931 og 1932, og segir verkið sögu Salvarar Valgerðar Jónsdóttur, sem er kölluð Salka Valka, en hún elst upp á Óseyri við Axlarfjörð, á miklum umbrotartímum í lífi íslensku þjóðarinnar.
Samlesari Sölku Völku og sérstakur gestur þáttar er Bergur Ebbi, rithöfundur og fyrirlesari.
Bókaklúbburinn Aldrei las ég Laxness hefur það markmið að lesa allar skáldsögur Halldórs Kiljan Laxness í tímaröð. Klúbburinn er hugsaður fyrir þau sem hafa lítið kynnt sér Laxness, þau sem hafa jafnvel aldrei lesið hann, eða bara krukkað í þessari gamalkunnu menntaskólaskyldu, eða öll þau sem hafa áhuga á skáldskap Kiljans. Næsta verk sem tekið verður fyrir í bókaklúbbnum verður smáskáldsagan Úngfrúin góða og húsið; dagsetning verður nánar auglýst síðar.

Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Nokkur vel valin lög

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.

Hljóðritun frá tónleikum Kammermúsíkklúbbsins sem fram fóru í Norðurljósum, Hörpu 15. mars sl.
Á efnisskrá eru þrjú kammerverk eftir Dmitríj Shostakovitsj:
- Píanótríó nr. 1 í c-moll, op. 8.
- Sónata fyrir fiðlu og píanó í G-dúr, op. 134.
- Sónata fyrir víólu og píanó, op. 147.
Flytjendur: Judith Ingólfsson á fiðlu og víólu, Bryndís Halla Gylfadóttir á selló og Vladimir Stoupel á píanó.
Umsjón: Bergljót Haraldsdóttir
Gígja Hólmgeirsdóttir ferðast um landið og kemur víða við – í þéttbýli, dreifbýli, borg og bæjum – og kynnir sér hin ýmsu málefni á hverjum stað.
Í dag lítum við inn á opna vinnustofu sem var haldin á Akureyri í byrjun maí og bar titilinn „Menning og ferðaþjónusta á Norðurlandi“. Markmiðið með viðburðinum var að styrkja samstarf og samtal milli menningar- og ferðaþjónstuaðila á svæðinu.
Vinnustofan var á vegum Safnafræði við Háskóla Íslands, Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála, Félags íslenskra safna og safnafólks, Síldarminjasafnsins á Siglufirði og Samtaka ferðaþjónustunnar.
Viðmælendur: Guðrún Dröfn Whitehead, Vera Vilhjálmsdóttir, Dagrún Ósk Jónsdóttir, Helga Nína Helgadóttir, Halldór Óli Kjartansson, Katrín Harðardóttir, Steinunn María Sveinsdóttir, Haraldur Þór Egilsson og Jóhannes Þór Skúlason.

Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar. Þórbergur Þórðarson skráði. Pétur Pétursson les í hljóðritun frá 1988
Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar. Fagurt mannlíf. Þórbergur Þórðarson skráði. Pétur Pétursson byrjar lesturinn.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 20. apríl 1988.


frá Veðurstofu Íslands

Oddvitar allra framboða til sveitastjórna mætast í umræðuþætti í aðdraganda kosninga 2026.
Fimm listar eru í framboði í Reykjanesbæ til sveitarstjórnarkosninga í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Framsóknarflokki, Arnar Páll Guðmundsson, Viðreisn, Vilhjálmur Árnason, Sjálfstæðisflokki, Gunnlaugur Kárason, Miðflokki og Guðný Birna Guðmundsdóttir, Samfylkingu.

Útvarpsfréttir.

07:30

08:30
Létt spjall og lögin við vinnuna.
Þetta var afar hressandi morgun, Odelay með Beck var Gæðaþrenna vikunnar, Red Hot Chili Peppers stórgræða og Eldjárns systkina tríóið Blood Harmony spiluðu í beinni útsendingu!
Lagalisti þáttarins:
Í SVÖRTUM FÖTUM – Dag Sem Dimma Nátt
BECK – Where It's At
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS, PÁLL ÓSKAR HJÁLMTÝSSON – Stanslaust stuð
LOU REED – Walk On The Wild Side
LEN – Steal My Sunshine
GCD – Kaupmaðurinn Á Horninu
ISSI – Bararara
CYPRESS HILL – Boom biddy bye bye
THE STONE ROSES – Fools Gold
GREININGARDEILDIN, EMILÍANA TORRINI, BOGOMIL FONT – Þú stendur alltaf með mér
U2 – Where The Streets Have No Name
HJÁLMAR – Til Þín
BECK – Jack-ass
THEM – It's All Over Now Baby Blue
MT JONES – I Don't Understand
TAME IMPALA – The Less I Know The Better
RED HOT CHILI PEPPERS – Give It Away
NICK CAVE, FLEA – Wichita Lineman
LAUFEY – Madwoman
SUEDE – Trash
KURT VILE – Chance To Bleed
ELVAR – Miklu betri einn
BIRNIR, GUSGUS – Walk away
SÓLDÖGG – Leysist Upp
JOHN LENNON, FLUX FIDDLERS, PLASTIC ONO BAND – Jealous guy
THE STROKES – Going Shopping
MOSES HIGHTOWER – Ráðahagur
THE CURE – Boys don't cry
DAVID BYRNE, GHOST TRAIN ORCHESTRA – Everybody Laughs
DORIS TROY – Just One Look
FALCO – Rock me Amadeus
IVAR KLAUSEN – Dreamer
FREE – All Right Now
GREIFARNIR – Púla
HOT CHIP – Dancing In The Dark

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Skortur á áhættumati, skriflegu verklagi og áætlunum er meðal þess sem starfshópur vegna jarðhræringanna á Reykjanesskaga setur út á. Viðbragðsaðilar hafi unnið þrekvirki og þeim að þakka að ekki fór verr.
Heilbrigðisráðherra Bretlands undirbýr afsögn og framboð í leiðtogasæti Verkamannaflokksins.
Fjórir af hverjum tíu foreldrum í aðildarfélögum ASÍ og BSRB eiga erfitt með að ná endum saman. Ný könnun sýnir mikinn mun á stöðu fólks eftir hjúskaparstöðu.
Rannsókn á innbroti í svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi, þar sem grísir drápust og dýr særðust, miðar ágætlega. Lögregla telur innbrotið skemmdarverk.
Mette Frederiksson hefur beðist afsökunar á orðum sínum, um að ef hún ætti ung börn vildi hún heldur að þau reyktu en að þau væru ein á samfélagsmiðlum.
Bandaríkjaforseti kemur til Kína í dag og býst við löngum samtölum við kollega sinn um stríðið við Íran.
Valskonur tryggðu sér í gærkvöld fjórða Íslandsmeistaratitilinn í röð í handbolta.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Lovísa sat með hlustendum í Popplandi dagsins. Póstkort og splúnkunýtt lag frá súpergrúbbunni Pílu, plata vikunnar með Blood Harmony og allskonar nýtt og gamalt í bland.
KK - Lífið er.
Mugison - Kúrekinn (ég trúi á lygina).
Una Torfadóttir, Ágúst Þór Brynjarsson - Inn í síðustu nóttina.
Del Rey, Lana - First Light.
Ragnheiður Gröndal - Má ég?.
Spilverk þjóðanna - Miss You.
Blood Harmony - Draumsnillingar.
Mitski - My Love Mine All Mine.
Mitchell, Joni - California.
Mendes, Shawn - Treat you better.
sombr - Potential.
FM Belfast - Par Avion.
Styles, Harry - Aperture.
Harpo - Moviestar.
SOUL 2 SOUL - Back to life (however do you want me).
Joy, Vance - Fascination in the Dark.
ELTON JOHN - Don't Go Breaking My Heart.
Issi - Bararara.
NEW ORDER - Blue Monday 88.
Friðrik Dór Jónsson, Moses Hightower - Bekkjarmót og jarðarfarir.
Empire of the sun - Walking On A Dream.
EVERLAST - What It's Like.
Death Cab for Cutie - Riptides.
Musgraves, Kacey - Dry Spell.
Elín Hall - Tachylite.
Sheeran, Ed - Azizam.
Addison Rae - Headphones On.
PÍLA - Nobody.
INSPECTOR SPACETIME - Skyr með rjóma (StúdíóRÚV).
Píla - Annað líf.
ARCTIC MONKEYS - Fluorescent Adolescent.
Memfismafían - Syngdu.
U2 - In a Life.
MT Jones - I Don't Understand.
Joe Frazier, Herra Hnetusmjör - Ég myndi líka hata mig.
BECK - Up All Night.
Boone, Benson - Sorry I'm Here For Someone Else.
JACK WHITE - G.O.D. And The Broken Ribs.
SYCAMORE TREE - Better call off the search for my soul.
MUKKA - So Close.
SALKA SÓL - Tímaglas.
BLOOD HARMONY - Summer Leaves.
KINGFISHR - The Blade.
LAUFEY - Madwoman.
JOHN MAYER - Daughters.
AMERICA - A Horse With No Name.
CREATURE OF HABIT - Myrká.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Ólafur Páll Gunnarsson spilar tónlist að sínum hætti - hitt og þetta og þetta og allt í bland.

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.

Oddvitar allra framboða til sveitastjórna mætast í umræðuþætti í aðdraganda kosninga 2026.
Fimm listar eru í framboði í Reykjanesbæ til sveitarstjórnarkosninga í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Framsóknarflokki, Arnar Páll Guðmundsson, Viðreisn, Vilhjálmur Árnason, Sjálfstæðisflokki, Gunnlaugur Kárason, Miðflokki og Guðný Birna Guðmundsdóttir, Samfylkingu.


Umsjón: Andrea Jónsdóttir.