Kynslóðir mætast

Ísland og umheimurinn

Í þriðja þætti Kynslóðir mætast svara viðmælendur þáttarins spurningum um Ísland og umheiminn. Hvaða aðgang höfðu Íslendingar alþjóðaheiminum fyrir 60 árum síðan? Hvað með ungt fólk nú, þegar hægt er fylgjast með því hvað er gerast í alþjóðaheiminum í rauntíma, sitjandi út í móa með símann fyrir framan sig? Skiptir máli fyrir ungt fólk fylgjast með því sem gerist utan landsteinanna? Hver verður staða Íslands eftir 50 ár? Munum við halda sjálfstæði okkar? Hvernig mun tungumálið okkar þróast?

Þátturinn var fyrst á dagskrá 25. september 2011.

Birt

25. sept. 2011

Aðgengilegt til

13. maí 2027

Kynslóðir mætast

Hvernig horfum við á nútíðina og hvernig spáum við í framtíðina? Getum við litið til baka og greint fortíðina? Getum við komist því hver viðhorf ungs fólks voru árið 1940? En árið 2011? Hvernig hafa hugmyndir fólks breyst á 50 árum? Og hvernig sér það þróunina fyrir sér næstu 50 ár?

Í þáttunum Kynslóðir mætast verður rætt við þrettán Íslendinga sem fæðast og alast upp á ólíkum tímum. Eldri viðmælendurnir eiga það sameiginlegt hafa fæðst áður en Ísland varð lýðveldi og yngri viðmælendurnir fæddust allir eftir Gleðibankinn var orðinn klassík og Perlan kennileiti í Reykjavík. Í eldri hópnum er yngsti viðmælandinn 73 ára og elsti 90 og í yngri hópnum er elsti 18 ára gamall og þeir yngstu 14 ára gamlir. Á milli elsta og yngstu viðmælendanna eru 76 ár.

Hvaða hugmyndir hafa þessir einstaklingar um menntun, störf, byggðarþróun, náttúruna, auðlindir, alþjóðamál, íslenska tungu og íslenskan mat? Hverju myndu þeir vilja breyta í íslensku samfélagi? Endurspegla tvær kynslóðir tvö ólík viðhorf? (Áður á dagskrá 2011)

Hvað eiga kynslóðirnar sameiginlegt? Hvað greinir þær að? Hvaða breytingar hafa orðið á hugmyndum fólks á hálfri öld? Hvernig sjá þessar tvær kynslóðir framtíðina fyrir sér? Umsjón: Gerður Jónsdóttir.

Þættir

,