Kynslóðir mætast

Menntun og störf

Hvert var viðhorf til menntunar á fyrri hluta 20. aldar þegar þrír menntaskólar voru á landinu og einn háskóli? Hvert er viðhorf til menntunar hjá ungu fólk nú, í samfélagi með þrjátíu og fjóra framhaldsskóla og sjö háskóla? Hvert var draumastarf fólks þegar stærstu atvinnuvegirnir voru landbúnaður og sjávarútvegur? Hver eru draumastörf ungs fólks á dögum í samfélagi þar sem 75% landsmanna starfa við þjónustustörf? Í fyrsta þætti Kynslóðir mætast heyrum við í viðmælendum þáttarins ræða um menntun og störf í fortíð, nútíð og framtíð.

Birt

11. sept. 2011

Aðgengilegt til

29. apríl 2027

Kynslóðir mætast

Hvernig horfum við á nútíðina og hvernig spáum við í framtíðina? Getum við litið til baka og greint fortíðina? Getum við komist því hver viðhorf ungs fólks voru árið 1940? En árið 2011? Hvernig hafa hugmyndir fólks breyst á 50 árum? Og hvernig sér það þróunina fyrir sér næstu 50 ár?

Í þáttunum Kynslóðir mætast verður rætt við þrettán Íslendinga sem fæðast og alast upp á ólíkum tímum. Eldri viðmælendurnir eiga það sameiginlegt hafa fæðst áður en Ísland varð lýðveldi og yngri viðmælendurnir fæddust allir eftir Gleðibankinn var orðinn klassík og Perlan kennileiti í Reykjavík. Í eldri hópnum er yngsti viðmælandinn 73 ára og elsti 90 og í yngri hópnum er elsti 18 ára gamall og þeir yngstu 14 ára gamlir. Á milli elsta og yngstu viðmælendanna eru 76 ár.

Hvaða hugmyndir hafa þessir einstaklingar um menntun, störf, byggðarþróun, náttúruna, auðlindir, alþjóðamál, íslenska tungu og íslenskan mat? Hverju myndu þeir vilja breyta í íslensku samfélagi? Endurspegla tvær kynslóðir tvö ólík viðhorf? (Áður á dagskrá 2011)

Hvað eiga kynslóðirnar sameiginlegt? Hvað greinir þær að? Hvaða breytingar hafa orðið á hugmyndum fólks á hálfri öld? Hvernig sjá þessar tvær kynslóðir framtíðina fyrir sér? Umsjón: Gerður Jónsdóttir.

,