16:05
Síðdegisútvarpið
Sauðburður í Fljótshlíð, farfugl á Seyðisfirði og stærstu málin í Reykjanesbæ

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Nú er sauðburður í fullum gangi um land allt og líklega hefur kuldatíð haft sitt að segja hjá sauðfjárbændum. Við tókum stöðuna hjá einum slíkum, hann er búinn að standa vaktina í Fljótshlíðinni á bænum Teigi, hann heitir Guðbjörn Árnason og réði sig sem vinnumann eftir að vera nýhættur að vinna hjá Íslandsbanka.

Í dag féll dómur í máli Intuens myndgreiningarfyrirtækisins gegn embætti landlæknis þar sem fyrirtækið hafði krafist þess að ákvörðun embættisins um að banna ákveðna heilskimunarþjónustu yrði felld úr gildi. Málið hefur vakið töluverða athygli og hefur vakið upp spurningar um mörk einkarekinnar heilbrigðisþjónustu og eftirlitshlutverk stjórnvalda.Við fórum yfir þennan nýja dóm, viðbrögðin við honum og hvað hann gæti þýtt fyrir starfsemi Intuens héðan í frá.Til okkar kom Steinunn Erla Thorlacius, framkvæmdastjóri Intuens.

Aðeins þrír dagar eru í sveitarstjórnarkosningarnar. Í kvöld mætast oddvitar listanna í Reykjanesbæ og venju samkvæmt heyrðum við í íbúa í bænum. Í þetta skiptið var það Ingvar Eyfjörð framkvæmdastjóri Aðaltorgs sem var á línunni.

Við kíktum næst austur á land, alla leið á Seyðisfjörð. Þar tók Hólmfríður hús á ævintýrakonunni og arkitektinum Þóru Bergný Guðmundsdóttur sem rekur farfuglaheimilið Hafölduna. Hólmfríður ræddi við hana um bæinn, vetrardvölina á Indlandi og fjallið Bjólf!

Í nýrri skýrslu starfshóps um viðbrögð stjórnvalda vegna jarðhræringanna á Reykjanesskaga er fjöldi athugasemda gerður við ákvarðanatöku embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum um aðgengi fjölmiðla að Grindavík. Blaðamannafélag Íslands gagnrýndi á sínum tíma þessar ákvarðanir og lagði meðal annars fram kæru gegn ríkinu. Formaður félagsins, Sigríður Dögg Auðunsdóttir, rifjaði upp málið.

Landnámssetrið í Borgarnesi er 20 ára um þessar mundir en þetta snotra og fína leikhús hefur boðið upp á sýningar sem slegið hafa í gegn hjá íslensku þjóðinni á þessum tíma. Við hringdum í Landsnámssetrið og heyrðum í henni Sigríði Margréti Guðmundsdóttur, Sirrý, sem þar öllu stjórnar ásamt Kjartani eiginmanni sínum.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,