Sögur af landi: Endurlit

Leyft öllum aldurshópum

46. þáttur

Þáttur frá 19. mars 2017: Í þessum þætti er fjallað um göng. Umsjónarmenn þáttarins bora sig inn í fjöll og stíga niður í undirheima þar sem pönktólist ómar neðan jarðar. Í sumum göngum felast augljósar samgöngubætur sem gagnast íbúum víðsvegar um land. Það má líka grafa göng í huga manns og tengja þar saman menningarheima. Innslög unnin af: Degi Gunnarssyni, Höllu Ólafsdóttur og Ágústi Ólafssyni.

Umsjón með endurliti: Gígja Hólmgeirsdóttir.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Sögur af landi: Endurlit

Við heyrum aftur sögurnar sem sagðar voru í þáttaröðinni Sögum af landi, sem var á dagskrá Rásar 1 frá árinu 2015-2023. Þar var flakkað um landið, rætt við fólk sem hafði sögur segja, kynntir voru áhugaverðir staðir og fréttamál líðandi stundar skoðuð - oft með nýjum augum. Efni í þættina unnu frétta- og dagskrárgerðarfólk RÚV um allt land.

Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir

Þættir

,