Sögur af landi: Endurlit

41. þáttur

Þáttur frá 19. febrúar 2017: Við förum við á rúntinn og tölum við fólk um rall og akstur. Systkinin Ásta og Daníel Sigurðarbörn segja frá ást sinni á hestöflum og hraða. Hallgrímur Ólafsson rifjar upp rúntinn á Akranesi og við pöntum bíl frá Bifreiðastöð Oddeyrar á Akureyri. Það er Gylfi Ásmundsson sem segir okkur frá þrjátíu ára starfsferli sem leigubílsstjóri.

Dagskrárgerð: Dagur Gunnarsson, Halla Ólafsdóttir og Ágúst Ólafsson.

Umsjón með endurliti: Gígja Hólmgeirsdóttir

Birt

20. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Sögur af landi: Endurlit

Við heyrum aftur sögurnar sem sagðar voru í þáttaröðinni Sögum af landi, sem var á dagskrá Rásar 1 frá árinu 2015-2023. Þar var flakkað um landið, rætt við fólk sem hafði sögur segja, kynntir voru áhugaverðir staðir og fréttamál líðandi stundar skoðuð - oft með nýjum augum. Efni í þættina unnu frétta- og dagskrárgerðarfólk RÚV um allt land.

Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir

Þættir

,