Sögur af landi: Endurlit

Leyft öllum aldurshópum

65. þáttur

Þáttur frá 5. nóvember 2017: Ævintýrin gerast víða. Í raun er allt lífið eitt stórt ævintýri ef maður hugsar út í það. það er bara spurning um að vera vakandi fyrir þeim. Í þessum þætti fáum við innsýn í þrennskonar ævintýri. Heimshornaflakk býður upp á mörg ævintýri, leikhúsið og tónlistin geta líka opnað gáttir inn í heim ævintýrana. Innslög í þáttinn unnu þau Birna Pétursdóttir, Dagur Gunnarsson og Jón Þór Kristjánsson.

Umsjón með endurliti: Gígja Hólmgeirsdóttir.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Sögur af landi: Endurlit

Við heyrum aftur sögurnar sem sagðar voru í þáttaröðinni Sögum af landi, sem var á dagskrá Rásar 1 frá árinu 2015-2023. Þar var flakkað um landið, rætt við fólk sem hafði sögur segja, kynntir voru áhugaverðir staðir og fréttamál líðandi stundar skoðuð - oft með nýjum augum. Efni í þættina unnu frétta- og dagskrárgerðarfólk RÚV um allt land.

Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir

Þættir

,