Sögur af landi: Endurlit

51. þáttur

Þáttur frá 30. apríl 2017: Ferðalög eru þema þessa þáttar. Á Ísafirði hittum við fyrir Einar Yngvason sem fer víða til keppa í skíðagöngu, Á Akureyri er rótgróið ferðafélag sem heldur utanum ferðir um hálendið og í Reykjavík hittast vinkonur og rifja upp ferðir í Selið í Ölfusi. Haukur Morthens og Ómar Ragnarsson sjá um tónlistina. Innslög í þáttinn unnu Dagur Gunnarsson, Halla Ólafsdóttir og Ágúst Ólafsson.

Umsjón með endurliti: Gígja Hólmgeirdsóttir.

Birt

12. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Sögur af landi: Endurlit

Við heyrum aftur sögurnar sem sagðar voru í þáttaröðinni Sögum af landi, sem var á dagskrá Rásar 1 frá árinu 2015-2023. Þar var flakkað um landið, rætt við fólk sem hafði sögur segja, kynntir voru áhugaverðir staðir og fréttamál líðandi stundar skoðuð - oft með nýjum augum. Efni í þættina unnu frétta- og dagskrárgerðarfólk RÚV um allt land.

Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir

Þættir

,