Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Vonin um frið á jörð er býsna fjarlæg um þessar mundir. Svo virðist sem í stað þess að allra leiða sé leitað til að halda frið eða koma á friði þyki einfaldara eða betra - eða hvað það er - að grípa til vopna. Við fjölluðum um frið og friðarfræði og friðarhugsjónina; Helga Þórólfsdóttir, fyrrverandi starfsmaður Rauða krossins og utanríkisráðuneytisins, kom til okkar.
Við ræddum svo um skapandi greinar þegar Halla Helgadóttir framkvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs kom til okkar. Rætt var m.a. um atvinnumál, nýsköpun, og stefnu stjórnvalda í arkitektúr og hönnun, sem þykir framsækin og góð en við náum ekki alveg að fara eftir.
Svo var það sígilda tónlistin, í dag fjallaði Magnús Lyngdal um óperuforleiki; tilurð og sögu, og við heyrðum tóndæmi úr sextándu-, sautjándu-, átjándu- og nítjándualda óperum.
Tónlist:
Skólakór Kársness, Jónas Ingimundarson - Senn kemur vor.
Gissur Páll Gissurarson, Sinfóníuhljómsveit Íslands - 05 La traviata (1853) : Lunge da lei...De miei bollenti spiriti.
Gunnar Gunnarsson - Breytir borg um svip.

07:30

08:30
Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Síðari þáttur um dauða búlgarska rithöfundarins og andófsmannsins Georgi Markov, sem lést í Lundúnum 1978 í kjölfar þess að hann var stunginn með regnhlíf.

Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni er fyrrverandi sjónvarps- og útvarpsmaður, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra og fyrrverandi formaður BSRB. Ögmundur Jónasson kom til okkar í dag og við spjölluðum við hann um lífið og tilveruna, forvitnuðumst um hvar hans rætur liggja, af hvaða fólki hann er komin en hans ættir skiptast í tvær fylkingar í stjórnmálaskoðunum, hægri í móðurætt og vinstri í föðurætt. Ögmundur sagði okkur svo meðal annars frá námsárunum í Skotlandi og mörgu fleiru og svo er hann síður en svo sestur í helgan stein, eins og við heyrðum í þættinum í dag.
Sigurlaug Margrét kom svo auðvitað í matarspjallið í dag og við skoðuðum með henni ýmsar hliðar á hrísgrjónum, t.d. grjónagrautinn, mismunandi tegundir af grjónum, hvernig hægt er að gera þau spennandi og svo aðeins um steikt hrísgrjón.
Tónlist í þættinum í dag:
Vorkvöld í Reykjavík / Ragnar Bjarnason og hljómsveit Svavars Gests (Evert Taube, texti Sigurður Þórarinsson
Walk on the Wildside / Lou Reed
Goldberg tilbrigði / Úrsúla Ingólfsdóttir Fassbind (Johann Sebastian Bach)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna Íslands og Evrópusambandsins fer fram 29. ágúst. Ríkisstjórnarflokkarnir kynntu þingsályktunartillögu þess efnis í morgun. Hún verður lögð fyrir þingið í næstu viku.
Meirihluti landsmanna er hlynntur þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB, samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallups, eða fimmtíu og sjö prósent. Ríflega þrjátíu prósent eru andvíg.
Háttsettur ísraelskur embættismaður segir árásir Ísraels og Bandaríkjanna á Íran hafa gengið betur en búist var við. Ísraelsher hélt áfram loftárásum á Íran og Líbanon, á sjöunda degi stríðsins. Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna hefur lýst yfir neyðarástandi vegna stríðsins í Mið-Austurlöndum.
Yfirlæknir á Vogi kveðst ekki vita til þess að fólk hafi hætt í viðhaldsmeðferð við ópíóíðafíkn vegna kostnaðar. Komið sé til móts við skjólstæðinga.
Formaður félags íslenskra heimilislækna segist bjartsýnn á að allir landsmenn verði komnir með heimilislækni á næstu tíu árum. Yfir hundrað sérnámslæknar í heimilislækningum stunda nú nám hér á landi.
Uppselt er á leik Íslands og Evrópumeistara Englands í undankeppni HM kvenna í fótbolta sem spilaður verður í Notthingham á morgun. Búist er við tæplega 30 þúsund áhorfendum.
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Íslenska gagnverafyrirtækið atNorth hefur verið selt fyrir 485 milljarða króna líkt. Þetta er langstærsta salan á íslensku gagnaverafyrirtæki hingað til.
Fyrirtækið var í eigu svissneska sjóðsstýringafyrirtækisins Partners Group að 95 prósent leyti og hópur stjórnenda atNorth átti 5 prósenta hluta. Stjórnendurnir skipta með sér rúmlega 24 milljörðum króna af söluverðinu að frádregnum kostnaði þeirra við kaup á hlutabréfunum á sínum tíima og skuldsetningu vegna þeirra.
Á bak við eignarhald svissneska fyrirtækisins eru hins vegar fjárfestar sem hafa fjárfest í sjóðum þess en ekki liggur fyrir hverjir þeir eru fyrir utan einn: Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins.
Fjallað er um söluna á atNorth og mikilvægi uppgangs gervigreindar við verðmat fyrirtækisins. Fyrirtækið er nú selt á 10 sinnum hærra en verði en fyrir fjórum árum síðan.
Rætt er forstjóra atNorth Eyjólf Magnúson Kristinsson og Hlöðver Árnason hjá upplýsingatæknifyrirtækinu Apró.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Pétur Magnússon hittir fólk þar sem það er statt.
Skjólstæðingar Frú Ragnheiðar nota vímuefni í æð, sumir eru heimilislausir, allir í mjög viðkvæmri stöðu. Við förum á vakt í Frúnni, bíl Frú Ragnheiðar sem keyrir um höfuðborgarsvæðið og veitir heilbrigðisþjónustu, nálaskipti og sálfélagslegan stuðning, og ræðum við sjálfboðaliðana og fólkið sem leitar í Frúnna.
Veraldarvefur tónlistarinnar. Lagasyrpur héðan og þaðan úr víðri veröld.
Ladysmith Black Mambazo, Campell, Ali - Many rivers to cross (live).
Soul Brothers - Mary.
Brahim, Aziza - Dios mio!.
Banda Morisca, Haukur Morthens - Rumaiquiya y Mutamid.
Almounzer, Ihsan, Orient club - Habibi ya asmar.
Conjunto Los Condores de Parinacocha - El proletario.
Marino Rivero, René - La loca de amor.
Pelaia, Alfredo, Paolantonio - Uruguayita.
Tsy An-Jaza - Tsy an-jaza andao tsika holy = Tsy-an-jaza let's go home.
Phiri, Seleta, AB Sounds - Tinali ndi anzathu ife.
Traoré, Rokia - Mouso niyalén.
Orchestre National de Barbès - Ma ychali.
Við heyrum aftur sögurnar sem sagðar voru í þáttaröðinni Sögum af landi, sem var á dagskrá Rásar 1 frá árinu 2015-2023. Þar var flakkað um landið, rætt við fólk sem hafði sögur að segja, kynntir voru áhugaverðir staðir og fréttamál líðandi stundar skoðuð - oft með nýjum augum. Efni í þættina unnu frétta- og dagskrárgerðarfólk RÚV um allt land.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Þáttur frá 29. janúar 2017: Sögur af landi fjalla að þessu sinni um myndir. Halla Ólafsdóttir sæki ljósmyndasafn Ísafjarðar, Dagur Gunnarsson ræðir við listamenn og Rögnvaldur Már Helgason fer í myndatöku á Akureyri.
Umsjón með endurliti: Gígja Hólmgeirsdóttir.
Rætt um menningarvikuna sem er að líða og það sem er efst á baugi og framundan um helgina.
Gestir Höllu Harðardóttur í Endastöð vikunnar eru þau Lóa Hjálmtýsdóttir, Haukur Þorgeirsson og Vigdís Jakobsdóttir
Þau ræða norsku sjónvarpsseríuna Berit - Betri maður og Leiðir, sýningu á verkum Guðrúnar Kristjánsdóttur á Kjarvalsstöðum.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Umræðan um Evrópusambandið og aðild Íslands að því fer oft í skotgrafirnar, bæði hjá stuðningsmönnum og andstæðingum. Framundan er þriðja umræðan á Alþingi þar sem tekist verður á um stöðu Íslands
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir segir það óumsemjanlegur hluti af friði í Úkraínu að Rússar skili þeim þúsundum barna sem þeir hafa kerfisbundið stolið. Nöfnum barnanna hefur í mörgum tilvika verið breytt og Rússar telja sig vera að vinna góðverk.
Súkkulaði er orðið eitt allra vinsælasta þýfi breskra búðarþjófa síðustu mánuði og misseri. Svo rammt er tekið að kveða að þessu, segir í umfjöllun breska ríkisútvarpsins BBC, að nokkrar stórar verslanakeðjur eru farnar að geyma allra vinsælasta súkkulaðið í læstum plast- eða glerskápum í sumum verslana sinna, þannig að viðskiptavinir þurfa að biðja afgreiðslufólk um aðstoð til að komast í góðgætið.

frá Veðurstofu Íslands
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Leikin eru lög sem samin hafa verið við ljóð íslenskra skálda. Fyrst eru tvö ljóð eftir Tómas Guðmundsson sem Þormar Ingimarsson samdi lög við. Fyrra lagið er Sundin blá sem Pálmi Gunnarsson syngur og Ríó tríó flytur seinna lagið sem heitir Við höfnina. Katrín Halldóra Sigurðardóttir syngur lag Bergþóru Árnadóttur við ljóð Tómasar Guðmundssonar Frá liðnu vori. Bergþóra syngur sjálf eigið lag við kvæðið Ein á báti eftir Herdísi Andrésdóttur og Jóhann Sigurðarson syngur Suðurnesjamenn eftir Sigvalda Kaldalóns við ljóð Ólínu Andrésdóttur. Una Stef syngur lag föður síns Stefáns S. Stefánssonar við þulu Theódóru Thoroddsen Tunglið, tunglið taktu mig og Ingólfur Steinsson flytur eigið lag við þuluna Kom ég þar að kveldi eftir Theódóru. Hljómsveitin Þokkabót flytur lagið Karl sat undir kletti sem Jórunn Viðar samdi við ljóð Halldóru B. Björnsson. Lítið eitt flytur tvö lög, það fyrra við ljóð Davíðs Stefánssonar, sem heitir Karlinn á klöpinni, lagið er eftir Gunnar Gunnarsson og hinsvegar Þá var ég ungur sem Jón Árni Þórisson samdi við ljóð Arnar Arnarsonar. Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Pétur Magnússon hittir fólk þar sem það er statt.
Skjólstæðingar Frú Ragnheiðar nota vímuefni í æð, sumir eru heimilislausir, allir í mjög viðkvæmri stöðu. Við förum á vakt í Frúnni, bíl Frú Ragnheiðar sem keyrir um höfuðborgarsvæðið og veitir heilbrigðisþjónustu, nálaskipti og sálfélagslegan stuðning, og ræðum við sjálfboðaliðana og fólkið sem leitar í Frúnna.
Skáldsaga Halldórs Laxness um hinn 18 ára gamla Stein Elliða kom út árið 1927 þegar Halldór var sjálfur 25 ára gamall.
Þessi saga um leit ungs manns að eigin lífsskoðunum þótti marka tímamót í íslenskri bókmenntasögu.
Valdimar Örn Flygenring las söguna fyrir útvarpið árið 1991.
Í 5., 6. og 34. lestri les Bára Lyngdal Magnúsdóttir ásamt Valdimar Erni og í 7. og 8. lestri les Guðrún S. Gísladóttir ásamt Valdimar.

frá Veðurstofu Íslands
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni er fyrrverandi sjónvarps- og útvarpsmaður, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra og fyrrverandi formaður BSRB. Ögmundur Jónasson kom til okkar í dag og við spjölluðum við hann um lífið og tilveruna, forvitnuðumst um hvar hans rætur liggja, af hvaða fólki hann er komin en hans ættir skiptast í tvær fylkingar í stjórnmálaskoðunum, hægri í móðurætt og vinstri í föðurætt. Ögmundur sagði okkur svo meðal annars frá námsárunum í Skotlandi og mörgu fleiru og svo er hann síður en svo sestur í helgan stein, eins og við heyrðum í þættinum í dag.
Sigurlaug Margrét kom svo auðvitað í matarspjallið í dag og við skoðuðum með henni ýmsar hliðar á hrísgrjónum, t.d. grjónagrautinn, mismunandi tegundir af grjónum, hvernig hægt er að gera þau spennandi og svo aðeins um steikt hrísgrjón.
Tónlist í þættinum í dag:
Vorkvöld í Reykjavík / Ragnar Bjarnason og hljómsveit Svavars Gests (Evert Taube, texti Sigurður Þórarinsson
Walk on the Wildside / Lou Reed
Goldberg tilbrigði / Úrsúla Ingólfsdóttir Fassbind (Johann Sebastian Bach)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Rætt um menningarvikuna sem er að líða og það sem er efst á baugi og framundan um helgina.
Gestir Höllu Harðardóttur í Endastöð vikunnar eru þau Lóa Hjálmtýsdóttir, Haukur Þorgeirsson og Vigdís Jakobsdóttir
Þau ræða norsku sjónvarpsseríuna Berit - Betri maður og Leiðir, sýningu á verkum Guðrúnar Kristjánsdóttur á Kjarvalsstöðum.

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Vinnustaðir, stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðarins geta hjálpað til við að vekja athygli á og stuðla að hugarfarsbreytingu varðandi ofbeldi í nánum samböndum. En hvernig geta þeir gert það? Dagný Aradóttir Pind lögfræðingur hjá BSRB kom til okkar.
Hvað er ELVA golf ? Það sem við heyrum er að það sé alger bylting í golfkennslu – meira um það í Morgunútvarpinu en Grétar Eiríksson þjónustustjóri og einn stofnenda ELVA mætti og sagði okkur allt um það.
Hjónin Yesmine Olsen og Arngrímur Fannar Haraldsson komu til okkar í Morgunútvarpið. Þau sitja aldrei auðum höndum eru í veitingarekstri eins og frægt er orðið en nú hafa þau ákveðið að flytja hingað rokkstjörnu í jógaheiminum. Sú rokkstjarna heitir Krishna Das en hann er þekktur fyrir kraftmikla og djúpa nærveru á sviði þar sem hann leiðir áhorfendur í gegnum kirtan sönghefð frá Indlandi. En hvað er kirtan sönghefð, hver er þessi magnaði maður og hvað er að frétta af Yesmine og Adda Fannari ?
Að venju fórum við í fréttir vikunnar og að þessu sinni mættu blaðamennirnir Valur Grettisson af Heimildinni og Magnús Jochum Pálsson af Vísi.

07:30

08:30
Létt spjall og lögin við vinnuna.
Þetta var sérstakur þáttur af því leitinu til að sjálf ríkisstjórnin ruddist inn og tók yfir um tíma. Talandi um tímann, þá var hann þema Lagalista fólksins.
Lagalisti þáttarins:
BJÖRGVIN HALLDÓRSSON – Eina Ósk
INSPECTOR SPACETIME – People in the Video
BRITNEY SPEARS – Toxic
WEEZER – Island In The Sun
NOAH KAHAN – The Great Divide
ROLLING STONES – Paint It Black
STONE ROSES – She Bangs the Drums (Single Version) (1989)
LIZZO – About Damn Time
ROYEL OTIS – Moody
SOUL 2 SOUL – Back to life
SPANDAU BALLET – To cut a long story short
DAÐI FREYR – Thank You
SKRIÐJÖKLAR – Tengja
CHER – If I Could Turn Back Time
RAGGI BJARNA OG LAY LOW – Þannig týnist tíminn
PINK FLOYD – Time
JÓHANN HELGASON – Take Your Time
IRMA THOMAS – Time Is On My Side
CINDY LAUPER – Time After Time
NÝDÖNSK – Tíminn
KK – Kærleikur og tími
BARAFLOKKURINN – Matter Of Time
THE KINKS – Where Have All The Good Times Gone
ALPHAVILLE – Forever Young
ICY – Gleðibankinn
METALLICA – Enter Sandman
GCD – Sumarið er tíminn
STING – Brand New Day
SPRENGJUHÖLLIN – Tímarnir okkar
MGMT – Time To Pretend
PRINCE - Sign 'O' the Times

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna Íslands og Evrópusambandsins fer fram 29. ágúst. Ríkisstjórnarflokkarnir kynntu þingsályktunartillögu þess efnis í morgun. Hún verður lögð fyrir þingið í næstu viku.
Meirihluti landsmanna er hlynntur þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB, samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallups, eða fimmtíu og sjö prósent. Ríflega þrjátíu prósent eru andvíg.
Háttsettur ísraelskur embættismaður segir árásir Ísraels og Bandaríkjanna á Íran hafa gengið betur en búist var við. Ísraelsher hélt áfram loftárásum á Íran og Líbanon, á sjöunda degi stríðsins. Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna hefur lýst yfir neyðarástandi vegna stríðsins í Mið-Austurlöndum.
Yfirlæknir á Vogi kveðst ekki vita til þess að fólk hafi hætt í viðhaldsmeðferð við ópíóíðafíkn vegna kostnaðar. Komið sé til móts við skjólstæðinga.
Formaður félags íslenskra heimilislækna segist bjartsýnn á að allir landsmenn verði komnir með heimilislækni á næstu tíu árum. Yfir hundrað sérnámslæknar í heimilislækningum stunda nú nám hér á landi.
Uppselt er á leik Íslands og Evrópumeistara Englands í undankeppni HM kvenna í fótbolta sem spilaður verður í Notthingham á morgun. Búist er við tæplega 30 þúsund áhorfendum.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Góður andi í Popplandi þrátt fyrir veðurfar, enda föstudagur. Lovísa Rut stóð vaktina og kynnti sér tilnefningar til íslensku tónlistarverðlaunanna, rifjaði upp nokkra smelli frá árinu 2014 og margt fleira.
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Veðurstofan hefur gefið út gular veðurviðvaranir við Breiðafjörð, á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra í fyrramálið. Spáð er suðlægum áttum og vindhraða á bilinu 18 til 28 metrum á sekúndu, með hviðum að 40 metrum. Við hringdum norður á Strandir og heyrðum í Jóni Guðbirni Guðjónssyni veðurathugunarmanni í Litlu Ávík í Árneshreppi hvar einna versta veðrinu er spáð
Þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem spurt verður hvort þjóðin vilji áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið um inngöngu Íslands fer fram 29. ágúst. Þetta tilkynnti ríkisstjórnin á blaðamannafundi fyrr í dag. Við opnuðum símann og heyrðum hvað hlustendur höfðu að segja um þetta mál.
Tónlistarkonan Una Stef setti inn áhugaverða færslu á FB í gær en þar segir hún frá því að erlent fyrirtæki sé búið að hafa ítrekað samband við hana til þess að fá hana til þess að vinna fyrir sig. Gott og vel. Vinnan felst í því að hún á að taka upp hundruði klukkutíma af henni sjálfri að tala íslensku og sömuleiðis á hún að syngja enn fleiri klukkutíma af efni á íslensku. Fyrir þetta átti Una að fá fúlgur fjár en þar stendur hnífurinn í kúnni ? Una kom til okkar og sagði okkur frá þessu ævintýralega tilboði og hvað hafi næst gerst í kjölfarið.
Í dag er Imark dagurinn haldinn hátíðlegur og starfsfólk í auglýsingageiranum gerir sér glaðan dag og fræðist um ýmislegt tengt geiranum og svo er blásið í lúðra í kvöld en þá eru bestu auglýsingarnar verðlaunaðar úr öllum miðlum. Við veltum því fyrir okkur í dag hvernig auglýsingabransinn lítur út, hvað hefur breyst og hvernig framtíðin lítur út og Einar Logi Vignisson framkvæmdastjóri Ruv sölu kom til okkar og ræddi þessi mál
Það er vitanlega fjölmargt í gangi um helgina í menningarlífinu og við hnutum um eina tónleika sem fram fara í Langholtskirkju á morgun þar sem barna- og unglingakórar flytja lög og texta eftir Magnús Eiríksson heitinn. Við heyrðum í kórstjóranum Sunnu Karen Einarsdóttur sem hefur að undanförnu kynnt tónlist Magnúsar fyrir börnunum og spurðum hana einnig um áhuga fólks á kórastarfi.
Loks hleruðum við hver dagskráin verður í sjónvarpinu í kvöld, Vikan með Berglindi Festival verður á sínum stað en Berglind leysti félaga sinn, hann Gísla Martein af í síðustu viku með sóma og ætlar að endurtaka leikinn í kvöld. Við trufluðum Berglindi í lok þáttar.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Umræðan um Evrópusambandið og aðild Íslands að því fer oft í skotgrafirnar, bæði hjá stuðningsmönnum og andstæðingum. Framundan er þriðja umræðan á Alþingi þar sem tekist verður á um stöðu Íslands
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir segir það óumsemjanlegur hluti af friði í Úkraínu að Rússar skili þeim þúsundum barna sem þeir hafa kerfisbundið stolið. Nöfnum barnanna hefur í mörgum tilvika verið breytt og Rússar telja sig vera að vinna góðverk.
Súkkulaði er orðið eitt allra vinsælasta þýfi breskra búðarþjófa síðustu mánuði og misseri. Svo rammt er tekið að kveða að þessu, segir í umfjöllun breska ríkisútvarpsins BBC, að nokkrar stórar verslanakeðjur eru farnar að geyma allra vinsælasta súkkulaðið í læstum plast- eða glerskápum í sumum verslana sinna, þannig að viðskiptavinir þurfa að biðja afgreiðslufólk um aðstoð til að komast í góðgætið.

Fréttastofa RÚV.
Kletturinn sér um að koma þér í gírinn á föstudagskvöldum. Rokk er rauði þráðurinn í gegnum þáttinn í eins teygjanlegum skilningi og mögulegt er. Rokk, indie rokk, indie popp, dans-pönk, nýbylgja, alt-rokk, síðpönk og country verður á boðstólum í hrærigraut af stemmingu og straumum.
Umsjón: Karl Sölvi Sigurðsson.
Lou Reed var maður kvöldsins. Rennt var yfir feril hans í tímaröð og áhrif hans og hljómsveitar hans The Velvet Underground skoðuð.
Molis Mood - Spacestation
I'd Love To Change The World - Ten Years After
I'm Waiting For The Man - The Velvet Underground
I Wanna Be Your Dog - The Stooges
Queen Bitch - David Bowie
Marquee Moon - Television
Run, Run, Run - The Velvet Underground
Æskuminning - Fræbbblarnir
There She Goes Again - Velvet Underground
Radio Free Europe - R.E.M.
Gloria - Patti Smith
Here She Comes Now - The Velvet Underground
Roadrunner - Modern Lovers
Nightclubbing - Iggy Pop
Oh Sweet Nuthin' - The Velvet Underground
Glæpur gegn ríkinu - SH Draumur
What Goes On - The Velvet Underground
Blitzkrieg Bop - The Ramones
Someday - The Strokes
Who Loves The Sun - The Velvet Underground
There Is A Light That Never Goes Out - The Smiths
She's Lost Control - Joy Division
Never Understand - Jesus and Mary Chain
Tonight - Iggy Pop
I'm So Free - Lou Reed
Teen Age Riot - Sonic Youth
Satellite Of Love - Lou Reed
Personality Crisis - New York Dolls
Add It Up - Violent Femmes
The Gun - Lou Reed
24 Hour Party People - Happy Mondays
Charley's Girl - Lou Reed
Dirty Blvd - Lou Reed
Rock & Roll - The Velvet Underground