07:03
Morgunútvarpið
Vinnumarkaðurinn og ofbeldi í nánum samböndum,ELVA golf,jóga rokkstjarna og fréttir vikunnar

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Vinnustaðir, stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðarins geta hjálpað til við að vekja athygli á og stuðla að hugarfarsbreytingu varðandi ofbeldi í nánum samböndum. En hvernig geta þeir gert það? Dagný Aradóttir Pind lögfræðingur hjá BSRB kom til okkar.

Hvað er ELVA golf ? Það sem við heyrum er að það sé alger bylting í golfkennslu – meira um það í Morgunútvarpinu en Grétar Eiríksson þjónustustjóri og einn stofnenda ELVA mætti og sagði okkur allt um það.

Hjónin Yesmine Olsen og Arngrímur Fannar Haraldsson komu til okkar í Morgunútvarpið. Þau sitja aldrei auðum höndum eru í veitingarekstri eins og frægt er orðið en nú hafa þau ákveðið að flytja hingað rokkstjörnu í jógaheiminum. Sú rokkstjarna heitir Krishna Das en hann er þekktur fyrir kraftmikla og djúpa nærveru á sviði þar sem hann leiðir áhorfendur í gegnum kirtan sönghefð frá Indlandi. En hvað er kirtan sönghefð, hver er þessi magnaði maður og hvað er að frétta af Yesmine og Adda Fannari ?

Að venju fórum við í fréttir vikunnar og að þessu sinni mættu blaðamennirnir Valur Grettisson af Heimildinni og Magnús Jochum Pálsson af Vísi.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 50 mín.
,