Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Veðurstofan hefur gefið út gular veðurviðvaranir við Breiðafjörð, á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra í fyrramálið. Spáð er suðlægum áttum og vindhraða á bilinu 18 til 28 metrum á sekúndu, með hviðum að 40 metrum. Við hringdum norður á Strandir og heyrðum í Jóni Guðbirni Guðjónssyni veðurathugunarmanni í Litlu Ávík í Árneshreppi hvar einna versta veðrinu er spáð
Þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem spurt verður hvort þjóðin vilji áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið um inngöngu Íslands fer fram 29. ágúst. Þetta tilkynnti ríkisstjórnin á blaðamannafundi fyrr í dag. Við opnuðum símann og heyrðum hvað hlustendur höfðu að segja um þetta mál.
Tónlistarkonan Una Stef setti inn áhugaverða færslu á FB í gær en þar segir hún frá því að erlent fyrirtæki sé búið að hafa ítrekað samband við hana til þess að fá hana til þess að vinna fyrir sig. Gott og vel. Vinnan felst í því að hún á að taka upp hundruði klukkutíma af henni sjálfri að tala íslensku og sömuleiðis á hún að syngja enn fleiri klukkutíma af efni á íslensku. Fyrir þetta átti Una að fá fúlgur fjár en þar stendur hnífurinn í kúnni ? Una kom til okkar og sagði okkur frá þessu ævintýralega tilboði og hvað hafi næst gerst í kjölfarið.
Í dag er Imark dagurinn haldinn hátíðlegur og starfsfólk í auglýsingageiranum gerir sér glaðan dag og fræðist um ýmislegt tengt geiranum og svo er blásið í lúðra í kvöld en þá eru bestu auglýsingarnar verðlaunaðar úr öllum miðlum. Við veltum því fyrir okkur í dag hvernig auglýsingabransinn lítur út, hvað hefur breyst og hvernig framtíðin lítur út og Einar Logi Vignisson framkvæmdastjóri Ruv sölu kom til okkar og ræddi þessi mál
Það er vitanlega fjölmargt í gangi um helgina í menningarlífinu og við hnutum um eina tónleika sem fram fara í Langholtskirkju á morgun þar sem barna- og unglingakórar flytja lög og texta eftir Magnús Eiríksson heitinn. Við heyrðum í kórstjóranum Sunnu Karen Einarsdóttur sem hefur að undanförnu kynnt tónlist Magnúsar fyrir börnunum og spurðum hana einnig um áhuga fólks á kórastarfi.
Loks hleruðum við hver dagskráin verður í sjónvarpinu í kvöld, Vikan með Berglindi Festival verður á sínum stað en Berglind leysti félaga sinn, hann Gísla Martein af í síðustu viku með sóma og ætlar að endurtaka leikinn í kvöld. Við trufluðum Berglindi í lok þáttar.
