07:03
Hringsól
Steingrímur Guðmundsson
Hringsól

Í þættinum verður ferðast á fáfarnar en áhugaverðar slóðir vítt og breitt um veröldina. Saga hvers staðar verður rakin og tónlist tengd honum leikin. Í hverjum þætti verður rætt við fólk sem hefur ferðast um viðkomandi land og það segir frá þeim áhrifum sem það varð fyrir af náttúru og menningu. Netfang þáttarins: <a href="mailto:[email protected]">[email protected]</a>

Umsjón Magnús R. Einarsson. Þættirnir eru einnig á Hlaðvarpi Rúv <a href="http://www.ruv.is/podcast"> HLAÐVARP RÚV</a>

Í þessum þætti segir Steingrímur Guðmundsson frá ferðum sínum til Indlands. Steingrímur lagði stund á indverskt tónlistarnám í hinum virta tónlistarskóla Ali Akhbar í Kaliforníu og fór í framhaldinu til Indlands til frekara náms. Hann hefur farið margar ferðir til landsins og er á leið þangað aftur í haust.

Öll tónlist í þættinum er samin og flutt af Steingrími.

Umsjón: Magnús R. Einarsson.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 50 mín.
e
Endurflutt.
,