16:05
Úr tónlistarlífinu
Ungir einleikarar
Úr tónlistarlífinu

SOS Sinfónía Jóns Hlöðvers Áskelssonar í flutningi Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands.

Hljóðritun frá tónleikum í Hofi, 29. maí 2022.

Einleikari á morstæki: Arngrímur Jóhannsson, loftskeytamaður.

Stjórnandi: Bjarni Frímann Bjarnason.

Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir.

Haustið 2017 átti tónskáldið Jón Hlöðver Áskelsson leið um Norðurslóðasetrið og hitti þar fyrir forstöðumann og eiganda safnsins, Arngrím Jóhannsson. Arngrímur, sem starfað hefur í áratugi sem flugmaður og loftskeytamaður, „morsaði" úr gömlu morstæki úr síðutogaranum Harðbak frá 1959 skilaboðin „ljósið skín í myrkrinu" og S.O.S.. Tónfall morsskilaboðanna vöktu með tónskáldinu hugmyndir og hugrenningatengsl. Hljóðskilaboð sem oft hafa skilið að ljós og myrkur, líf og dauða og tengjast bæði sorg og gleði. Þessi stund hafði slík áhrif á Jón Hlöðver að úr varð fimm þátta sinfónía þar sem þessi einföldu en merkingarþrungnu taktmynstur morsins skipa stóran sess.

Hljóðritun frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands 25.

maí s.l. þar sem fram komu sigurvegarar úr einleikarakeppni Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Listaháskóla Íslands.

Á efnisskrá:

*Sönglög og óperuaríur eftir Maurice Ravel, Richard Wagner, Alban Berg, Henry Purcell, Ralph Vaughan Williams og Richard Strauss.

*Víólukonsert eftir William Walton.

Einsöngvarar: Ólafur Freyr Birkisson, Ragnheður Ingunn Jóhannsdóttir og Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir.

Einleikari: Þórhildur Magnúsdóttir.

Stjórnandi: Nathanaël Iselin.

Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir.

Var aðgengilegt til 27. júní 2023.
Lengd: 1 klst. 43 mín.
,