14:00
Litli rauði trékassinn: Erlendur Guðmundsson í Unuhúsi og vinir
Halldór Laxness í Unuhúsi
Litli rauði trékassinn: Erlendur Guðmundsson í Unuhúsi og vinir

Erlendur Guðmundsson í Unuhúsi var velgjörðamaður listamanna á fyrrihluta tuttugustu aldar og ásamt móður sinni Unu Gísladóttur rak Unuhús, litla rauða timburhúsið í Garðastræti. Í þremur þáttum tileinkuðum Erlendi kynnumst við manninum gegnum augu vina hans, þeirra Þórbergs Þórðarsonar, Halldórs Laxness og Nínu Tryggvadóttur. Í Unuhúsi var rekið gistiheimili og voru þar haldnar kvöldvökur þar sem list, pólitík, heimsmál, heimspeki og trúmál voru rædd í þaula og má gera ráð fyrir að hafi verið skjól fyrir bæði fólk sem átti ekki í önnur hús að venda sem og róttæka hugmyndafræði. Verður sjónum einnig beint að rýminu Unuhúsi og því sem einkenndi það, sem og listinni sem var að brjótast upp á yfirborðið á þessum tíma.

Viðmælendur eru Pétur Gunnarsson, Soffía Auður Birgisdóttir, Jón Karl Helgason, Rósa Magnúsdóttir, Halldór Guðmundsson, Ásta Kristín Benediktsdóttir, Ásdís Ólafsdóttir og Aðalsteinn Ingólfsson.

Umsjón hefur Sunneva Kristín Sigurðardóttir.

Halldór Guðjónsson frá Laxnesi kemur fyrst í Unuhús 17 ára gamall, 1919, þá að stíga sín fyrstu skref sem skáld. Unglingurinn kynnist og hrífst af Erlendi og öðrum skáldum sem þegar hafa vanið komur sínar í Unuhús og gerir fljótt táknmynd úr Erlendi. Vinskapur þeirra er sýnilegur í bréfum þeirra á milli og nánast eins og Erlendur gangi Halldóri í föðurstað. Eftir að Erlendur deyr tileinkar Halldór honum Atómstöðina, og þar má sjá menningu innblásna af Unuhúsi. Hinseginrýmið Unuhús verður rætt með tilliti til Atómstöðvarinnar og Þórðar Sigtryggssonar. Módernisminn, blómin, bækurnar...

Viðmælendur eru Halldór Guðmundsson rithöfundur, Ásta Kristín Benediktsdóttir lektor í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands og Pétur Gunnarsson rithöfundur.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 50 mín.
,