Martröð í hoppukastala
Óhugnanlegt slys varð í risastórum hoppukastala á Akureyri sumarið 2021. Kveikur varpar ljósi á hvað gerðist í raun, með hjálp sjónarvotta og barna sem voru í kastalanum.
Horfa á þáttinnHér getur þú séð alla þætti Kveiks frá upphafi.
Óhugnanlegt slys varð í risastórum hoppukastala á Akureyri sumarið 2021. Kveikur varpar ljósi á hvað gerðist í raun, með hjálp sjónarvotta og barna sem voru í kastalanum.
Horfa á þáttinnRafbílavæðing er komin á fleygiferð á Íslandi en ýmsar hindranir eru í veginum. Kveikur skoðar sérstaklega þátt stjórnvalda sem hafa með skattaafslætti auðveldað þúsundum landsmanna að kaupa sér rafbíl. Í seinni hluta þáttarins kynnumst við Ottó Bjarka Arnar sem ólst upp hjá foreldrum með þroskafrávik og flogaveiki.
Horfa á þáttinnÁri eftir innrás Rússa í Úkraínu ferðast Kveikur þangað á ný. Úkraínumenn lifa í skugga stríðs þótt fólk beri sig vel og endurbyggi hratt. En það glittir ekki í endalok átakanna. Hvernig er hægt að lifa við þessar aðstæður?
Horfa á þáttinnAlvarleg líkamsárás varð á vistheimili fyrir börn og ungmenni í fyrra, ekki í fyrsta sinn. Kveikur talar við fórnarlamb árásarinnar og fjallar um bresti í kerfinu sem sinnir börnum sem beita ofbeldi og þurfa sérstaka vistun.
Horfa á þáttinnÞúsundir tonna af dýrahræjum hafa verið urðaðar á Íslandi undanfarin ár, þótt það sé ólöglegt. Íslendingar henda 1,3 milljónum tonna af úrgangi á ári. Til stendur að loka langstærsta urðunarstað á Íslandi fyrir lok þessa árs, og nýr staður hefur ekki fundist. Þjófar stela úr verslunum fyrir um sex
Horfa á þáttinnKveikur fjallar um sílíkonbrjóstapúða og þær aukaverkanir sem þeir geta haft. Þrjár konur lýsa reynslu sinni og veikindum eftir að hafa látið græða í sig sílíkonpúða. Sérfræðingar segja einnig frá nýjustu rannsóknum sem benda til þess að BII, breast implant illness eða brjóstapúðaveiki, þurfi að taka alvarlega.
Horfa á þáttinnÍ sjö ár hefur Kveikur fylgst með tveimur sýrlenskum fjölskyldum sem boðið var til Íslands skömmu fyrir jólin 2015, sem kvótaflóttamönnum. Á þessum tíma hefur mikið gerst í lífi fjölskyldnanna, þau upplifað sigra og vonbrigði. Frá gleðinni yfir að komast í skjól frá stríði og hörmungum til streðsins við að
Horfa á þáttinnFjöldi núverandi og fyrirhugaðra sjókvíaeldissvæða er í siglingaleiðum skipa. Yfirvöld lýsa áhyggjum af þessu. Kveikur rýnir líka í áform um sjókvíaeldi í Seyðisfirði. Í seinni hluta þáttarins er fjallað um úrræðaleysi Íslands í varnarmálum. Heimsmyndin er breytt, ógnin meiri og geta Íslendinga til að bregðast við henni er lítil, því
Horfa á þáttinnVélbyssum hefur stórfjölgað á Íslandi á síðustu árum. Kveikur skyggnist inn í heim löglegra og ólöglegra vopna. Örverur í íslenskum hraunhellum geta gefið vísbendingar um líf á öðrum hnöttum, samkvæmt nýrri fjölþjóðlegri rannsókn. Í þættinum eru sýndar viðkvæmar náttúruperlur sem hafa ekki komið fyrir sjónir almennings áður.
Horfa á þáttinnKóvid, eldgos og stríð hafa minnt á fallvaltleika kerfisins og vakið spurningar um fæðuöryggi þjóðarinnar. Yrði til nægur matur í landinu á hamfara- eða stríðstímum?
Horfa á þáttinnKveikur fjallar um virkjanir og virkjunarhugmyndir undir 10 megavöttum, sem þurfa ekki að fara fyrir Alþingi. Í seinni hluta þáttarins er brugðið upp nærmynd af Haraldi Þorleifssyni, einum óvenjulegasta auðmanni landsins.
Horfa á þáttinnOne of the worst traffic accidents in Iceland's history happened at the river Núpsvötn in southern Iceland at the end of December, 2018. This is the story of two survivors: a father and his daughter. Over the last decade, 119 people have died in traffic accidents in Iceland, a country
Horfa á þáttinnEitt versta bílslys sem hefur orðið á Íslandi varð við Núpsvötn milli jóla og nýárs árið 2018. Feðgin sem lifðu af segja sögu sína í þættinum. Alls hafa 119 látist í umferðarslysum undanfarinn áratug, stór hluti erlendir ferðamenn. Í þættinum er varpað fram spurningum um umferðaröryggi á Íslandi nú þegar
Horfa á þáttinnÍ þrjátíu ár hefur verið fjallað um fráflæðisvanda Landspítalans en minna horft til fólksins sem lendir á hrakhólum. Hefur eitthvað breyst á þessum þrjátíu árum? Og hvernig stendur á því að veikt, gamalt fólk nýtur ekki fullra mannréttinda? Í þættinum verður sjónum beint að öldruðu fólki og aðbúnaði þeirra. Í
Horfa á þáttinnSífellt fleiri börn leita á barna- og unglingageðdeild Landspítalans vegna skjáfíknar. Fjallað er um nýja íslenska rannsókn um skjánotkun barna og unglinga. Í seinni hluta þáttarins er fjallað um spurningar sem hafa vaknað um öryggi Breiðafjarðarferjunnar Baldurs.
Horfa á þáttinn