Útvarp
Sjónvarp
Útvarp
KrakkaRÚV
UngRÚV
MenntaRÚV
Beint
RÁS 1
RÁS 2
RONDÓ
Dagskrá
Leit
Þættir
Tuttugasti og fjórði þáttur
Fluttar eru nokkrar sögur úr segulbandasafni því sem Hallfreður Örn Eiríksson og Olga María Fransdóttir kona hans komu með úr ferð til Kanada og Bandaríkjanna þar sem þau söfnuðu viðtölum…
Tuttugasti og þriðji þáttur
Fluttir eru tveir fyrstu þættir Sveins Skorra Höskuldssonar „Skáld í Vesturheimi", sem fjalla um blaðamennsku Einars Hjörleifssonar, Gests Pálssonar og Jóns Ólafssonar í Winnipeg.
Tuttugasti og annar þáttur
Flutt er frásögn Ólafs Ólafssonar í Gimli þar sem hann lýsir áhrifum mikilla trúardeilna sem urðu meðal íslensku landnemanna í Nýja Íslandi á áttunda áratug 19. aldar. Frásögn Ólafs…
Tuttugasti og fyrsti þáttur
Rætt er við Mörð Árnason sem segir frá nefnd um samstarf við Vestur-Íslendinga en hún starfar á vegum utanríkisráðuneytisins og vinnur að skrásetningu Kanada- og Bandaríkjamanna af…
Tuttugasti þáttur
Þorleifur Hauksson les kafla úr „Vestmenn" eftir Þorstein Þ. Þorsteinsson en það er útgáfa á útvarpserindum sem Þorsteinn flutti í Ríkisútvarpinu veturinn 1934-45, um landnám Íslendinga…
Nítjándi þáttur
Eðvarð Gíslason frá Nýja-Íslandi, Jón Sigvaldason Árborg og Gunnar Sæmundsson Árborg sögðu Hallfreði Erni Eiríkssyni sögur af samskiptum Íslendinga og indíána á landnemaárunum þegar…
Átjándi þáttur
Fluttar eru nokkrar sögur úr segulbandasafni því sem Hallfreður Örn Eiríksson og Olga María Fransdóttir komu með úr ferð á slóðir Vestur-Íslendinga árið 1972-73. Hólmfríður Daníelsdóttir…
Sautjándi þáttur
Magnús Elíasson, fyrrum borgarráðsmaður í Winnipeg, segir Jóni Karli Helgasyni frá æsku sinni og uppvexti, en leið Jóns Karls lá um Íslendingabyggðir í Kanada í nóvember 1995. Magnús…
Sextándi þáttur
Hallfreður Örn Eiríksson segir frá söfnunarferðalagi sem hann, ásamt konu sinni Olgu Maríu Fransdóttur, fór á slóðir Vestur-Íslendinga í Kanada og Bandríkjunum 1972-73. Flutt eru tvö…
Fimmtándi þáttur
Leiknar eru upptökur Jóns Karls Helgasonar frá Íslendingabyggðum í Kanada en þangað lá leið hans í nóvember 1995. Stefán Stefánsson í Gimli segir frá landnáminu og safnahúsinu. Neil…
Fjórtándi þáttur
Flutt eru tvö brot úr segulbandasafni því sem Hallfreður Örn Eiríksson og kona hans Olga Fransdóttir söfnuðu meðal Vestur-Íslendinga í Kanada og Bandaríkjunum 1972-73. Þetta safn er…
Þrettándi þáttur
Þorleifur Hauksson les kafla úr nýrri skáldsögu „Híbýli vindanna" eftir Böðvar Guðmundsson og rætt er við höfundinn sem staddur er í Danmörku.
Tólfti þáttur
Margrét Björgvinsdóttir les úr „Játningum landnemadóttur" eftir Laura Salversson sem kom út í íslenskri þýðingu 1994. Rætt er við Guðrúnu B. Guðsteinsdóttur, lektor í ensku við Háskóla…
Ellefti þáttur
Rætt er við Viðar Hreinsson, bókmenntafræðing um um „ljóðaflaggskipin þrjú vestra" : Stephan G. Stephansson, Guttorm J. Guttormsson og Káinn. Óskar Halldórsson les „Á ferð og flugi",…
Tíundi þáttur
Rætt er við Viðar Hreinsson, bókmenntafræðing og fyrrum kennara í Vestur-íslenskum bókmenntum við Manitobaháskóla, um áhuga vesturfara á bókmenntum. Magnús Elíasson frá Lundar í Nýja-Íslandi…
Níundi þáttur
Gísli Sigurðsson segir frá vesturför Halldórs Kiljans Laxness, 1922 og 1927. Óskar Halldórsson les úr sögu sem Laxness skrifaði þar „Nýja-Ísland". Gísli segir svo frá viðtökum vestra,…
Áttundi þáttur
Sveinn Skorri Höskuldsson segir frá Einari Hjörleifssyni Kvaran, námi hans í Danmörku og ritstjórastörfum í Vesturheimi. Ingibjörg Haraldsdóttir les úr sögu Einars „Vonir" og Sveinn…
Sjöundi þáttur
Þorleifur Hauksson les brot úr smásögu Jóhanns Magnúsar Bjarnasonar „Íslenskt heljarmenni". Haraldur Bessason segir frá Jóhanni, verkum hans og sjálfsmynd Vestur-Íslendinga.
Sjötti þáttur
Ingibjörg Haraldsdóttir les kafla úr Safni til sögu landnáms Íslendinga í Vesturheimi, eftir Guðlaug Magnússon, en það birtist í Almanaki Ólafs Thorgeirssonar árið 1899. Haraldur Bessason…
Fimmti þáttur
Bergsteinn Jónsson, sagnfræðingur, segir frá áliti landsmanna hér heima á vesturförunum. Þorleifur Hauksson les úr skrifum Benedikts Sveinbjarnarsonar um vesturfara sem birtist í febrúar…
Fjórði þáttur
Ingibjörg Haraldsdóttir les úr Fréttabréfi Björns Jónssonar frá Nýja-Íslandi, skrifað í Gimli 14. ágúst 1877. Ögmundur Helgason, forstöðumaður handritadeildar Landsbókasafns segir…
Þriðji þáttur
Baldur Hafstað segir frá æsku, uppvexti og vesturför Stephan G. Stephansson. Þorleifur Hauksson les úr Ferðasögu frá Íslandi til Ameríku árið 1873, eftir Stephan G., kaflann um ferðina…
Annar þáttur
Hjörtur Pálsson segir frá Jóni Ólafssyni ritstjóra og þingmanni og draumi hans um landnám Íslendinga í Alaska. Ingibjörg Haraldsdóttir les niðurlagið úr hvatningarbæklingi Jóns Ólafssonar…
Fyrsti þáttur
Bergsteinn Jónsson, sagnfræðingur segir frá aðdraganda og upphafi landnáms Íslendinga í Vesturheimi. Þorleifur Hauksson les úr bréfum Árna Guðmundsen, landnema á Washingtoneyju, Michiganvatni…
,