Brim og boðar
Í þættinum er efni úr bókinni Brim og Boðar. Lesin er frásögn um það þegar vöru-og farþegaskipið Tryggvi Kóngur fórst austur af Langanesi árið 1907. Lesari með umsjónarmanni Bryndís…
Í þættinum er fjallað um Ingunni Jónsdóttur frá Melum í Hrútafirði.
Hún var fædd þar árið 1855 og lést í hárri elli 1947. Ingunn giftist Birni Sigfússyni sem lengi var alþingismaður og mikils metinn fyrir þjóðmálastörf sín. Þau bjuggu í Vatnsdal; fyrst á Hofi, síðan Grímstungu og loks á Kornsá.
Á gamals aldri skrifaði Ingunn minningar sínar í tveimur bókum; Bókin mín kom út árið1926 og Minningar árið 1937.
Lesið er úr fyrri bókinni í þættinum. Lesari með umsjónarmanni er Bryndís Þórhallsdóttir.
Umsjón Birgir Sveinbjörnsson.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 30. janúar 2009.

Í Sagnaslóð er víða leitað fanga. Sagt er frá mönnum og málefnum fyrri tíma. Umsjónarmenn: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson
Þættir frá vetrinum 2008-2009