Brim og boðar
Í þættinum er efni úr bókinni Brim og Boðar. Lesin er frásögn um það þegar vöru-og farþegaskipið Tryggvi Kóngur fórst austur af Langanesi árið 1907. Lesari með umsjónarmanni Bryndís…
Lesið úr Íslendingabók Gunnars Hall sem út kom árið 1958 um Odd V. Gíslason sem var allt í senn prestur, rithöfundur og sjómaður og var auk þess frumkvöðull að bættum öryggis- og slysavarnamálum hér á landi. Í framhaldi af því er sagt frá frækilegri björgun á mörgum sjómönnum úr Grindavík bæði árið 1911 og 1916 en Oddur var lengi prestur þar. Lesari með umsjónarmanni er Bryndís Þórhallsdóttir.
Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 2. janúar 2009.

Í Sagnaslóð er víða leitað fanga. Sagt er frá mönnum og málefnum fyrri tíma. Umsjónarmenn: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson
Þættir frá vetrinum 2008-2009