
Mannlegi þátturinn
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Það er 40 ára vígsluafmæli Hallgrímskirkju og það er dánardægur Hallgríms Péturssonar í dag. Við heyrðum um ævi Hallgríms, ástir og átök og einnig um mikilvægi Hallgrímskirkju í dag. Steinunn Jóhannesdóttir leikkona og rithöfundur kom í þáttnn í dag og talaði um Hallgrím og minntist líka á Guðríði, konu Hallgríms en á næsta ári verða 400 ár liðin frá Tyrkjaráninu en nú hefur bók Steinunnar „Reisubók Guðríðar“ verið þýdd yfir á ensku.
Um 2000 gestir lögðu leið sína í Ísaksskóla fyrir skemmstu þegar 100 ára afmæli skólans var fagnað. Þar komu saman fyrrverandi og núverandi kennarar, starfsfólk og nemendur og velunnarar skólans. Sigríður Anna Guðjónsdóttir skólastjóri kom til okkar í dag og sagði okkur sögu Ísaksskóla og því hvernig það atvikaðis að skólinn sé aftur orðinn eigandi að því húsnæði sem verið hefur heimili skólastarfsíns um áratuga skeið.
Svo var að veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni. Haustlægðir koma og fara, svo eru veðrabrigði framundan og að lokum rifjaði Einar upp ofsaveður sem fór yfir landið fyrir næstum nákvæmlega 90 árum með miklum afleiðingum, til dæmis í Hafnarfirði.
Tónlist í þættinum í dag:
Sveitapiltsins draumur / Hljómar (erlent lag, texti Ómar Ragnarsson)
Allt mitt líf / Elly (erlent lag, texti Ólafur Gaukur Þórhallsson)
Koffort þungt sem blý / Valgeir Guðjónsson (Valgeir Guðjónsson)
Þrjú tonn af sandi / Haukar (erlent lag, texti Þorsteinn Eggertsson)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.