Mannlegi þátturinn

Vala og Tyrkland, Jónas Árnason frá 1947 og Árni Friðriksson lesandi vikunnar

Vala Þórsdóttir leikkona og höfundur kom til okkar í dag, en það eru ekki margir sem vita af því að verk eftir hana hafa verið talsvert oft sett á svið í Tyrklandi alveg frá árinu 2002 þegar einleikur hennar Háaloft var frumsýndur í Izmir, en Háaloft hefur verið sett upp nánast árlega í Tyrklandi og er nú leikið af mjög þekktri leikkonu. Vala hefur margoft farið til Tyrklands síðan þá og fer nú aftur í desember þar sem hún kennir og verður viðstödd dagskrá á verkum hennar sem verða sýnd henni til heiðurs. Vala sagði okkur frá hvernig þessi tenging hennar við Tyrkland komst á í upphafi og fleiru sem hún er að bralla nú og á næstunni.

Við heyrðum svo 80 ára gamalt hljóðbrot úr safni Útvarpsins sem flutt var sunnudagskvöldið 27.júlí árið 1947 af Jónasi Árnasyni dagskrárgerðarmanni. Erindið var í þættinum Heyrt og séð og fjallaði meðal annars um póst- og skeytaþjónustu á landinu, vegakerfið í Hvalfirðinum og fleira og hann var aldeilis ekki að liggja á skoðunum sínum. Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri RÚV sagði okkur frá þessu erinidi og leyfði okkur að heyra það.

Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Árni Friðriksson enskukennari við Menntaskólann á Egilsstöðum og leikskáld, söngvari, leikari og fleira. Hann sagði okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Árni sagði frá eftirfarandi bókum og höfundum:

East of Eden (Austan Eden) e. John Steinbeck

Þú sem ert á jörðu e. Nínu Ólafsdóttir

Oryx and Crake e. Margaret Atwood

Það sem kann að leynast í eyra mínu e. Mosab Abu Toha

Ray Bradbury

Tónlist í þættinum í dag:

Hvað með það? / Stefán Hilmarsson, Raggi Bjarna og Pétur Kristjánsson (erlent lag, texti Ómar Ragnarsson)

Hvað vita þeir? / Björgvin Halldórsson og Jón Jósep Snæbjörnsson (erlent lag, texti Karl Mann)

Hvað er að? / Elly Vilhjálms (Jón Múli, texti Jónas Árnason)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,