• 00:07:42Sæunn Kjartansd. - gáfaða dýrið
  • 00:34:46Birgir Tjörvi Pétursson - lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn

Sæunn Kjartansdóttir og gáfaða dýrið og Birgir Tjörvi lesandi vikunnar

Hvernig stendur á því að við erum það sem við erum og gerum það sem við gerum, oft þvert á alla skynsemi? Við töluðum í dag við Sæunni Kjartansdóttur hjúkrunarfræðing og sálgreini, en hún spyr einmitt þessara spurninga og leitast við að svara þeim á námskeiði sem hún er með hjá Endurmenntun HÍ, og hún fjallaði um í bók sinni, Gáfaða dýrið, þar sem hún hjálpar lesandanum að átta sig betur á sjálfum sér og öðru fólki, skilja samskipti og samfélagið og takast á við streitu, ótta og einmanaleika. Þar kemur einmitt dýrið í okkur til sögunnar. Sæunn útskýrði þetta betur fyrir okkur í þættinum í dag.

Og lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn er Birgir Tjörvi Pétursson lögmaður og nú rithöfundur, en þessa dagana kemur út hans fyrsta skáldsaga, Skuggar af Kili þar sem söguhetjan leggur í rannsókn á uppruna sérkennilegra reglna sem móðurfjölskylda hans hefur farið eftir í 250 ár. Svo segir hann okkur auðvitað frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Birgir talaði um eftirfarandi bækur og höfunda.

Þöglu myndirnar, Pensilskrift og Ótíð í víti eftir Gyrði Elíasson.

The Wind-Up Bird Chronicle e. Murakami

Bróðir minn ljónshjarta e. Astrid Lindgren

Stephen King

Tónlist í þættinum í dag:

Láttu mig gleyma / Stuðmenn (Egill Ólafsson, Jakob Frímann og Þórður Árnason, texti Þórður Árnason)

This fire! / Tina Dickow og Emilíana Torrini (Tina Dickow)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,