
Mannlegi þátturinn
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Full af lífi - vínlaus lífsstíll er nafn á námskeiði sem Gunnar Hersveinn rithöfundur og heimspekingu og Margrét Leifsdóttir arkitekt og heilsumarkþjálfi, hafa staðið fyrir. Þar fara þau yfir ýmsar leiði til að lifa án áfengis, eins og þau orða það þá miðla þau lyklum til að loka dyrum og opna aðrar til betri vegar. Lára G. Sigurðardóttir læknir er gestakennari á námskeiðinu þar fer hún yfir hvaða áhrif það hefur á líkamann að hætta að drekka áfengi í fimm vikur. Margrét og Lára komu í þáttinn og sögðu okkur betur frá.
Kurt Weill er eitt áhrifamesta og sérkennilegasta tónskáld 20. aldar. Tónskáld sem samdi óperu-, leikhús-, kabarett- jazz- og dægurtónlist. Hann skapaði tónlistarheim þar sem mörkin milli klassíkur og dægurtónlistar verða óljós. Í tilefni af afmælisári tónskáldsins tóku söngkonurnar Sigríður Thorlacius og Hildigunnur Einarsdóttir saman fjölbreytta tónleikadagskrá með sönglögum og sviðstónlist frá ólíkum tímabilum á ferli hans. Þær komu í þáttinn í dag.
Svo kom Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjallið. Í dag sagði okkur frá rannsóknum sem sýna fram á tengingu daglegrar hreyfingar og bættra svefngæða.
Tónlist í þættinum í dag:
Í kjallaranum / KK Sextettinn og Óðinn Valdimarsson (Jón Sigurðsson)
The tide is high / Blondie (Holt)
Mac the knife / Quincy Jones og Frank Sinatra (Kurt Weill, texti Bertolt Brecht, þýð. Marc Blitzstein)
Congratulations / Cliff Richard (Bill Martin & Phil Coulter)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.