• 00:10:32Magnús Geir - leikárið í Þjóðleikhúsinu
  • 00:32:10Laufey Sigurðardóttir - lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn

Leikveturinn í Þjóðleikhúsinu og Laufey Sigurðardóttir lesandi vikunnar

Við héldum áfram yfirferð Mannlega þáttarins yfir það hvað verður á fjölum leikhúsanna á nýhöfnum vetri. Í dag var það Þjóðleikhússtjórinn Magnús Geir Þórðarsson sem fór yfir leikveturinn, þar verða m.a. tvö íslensk verk á Stóra sviðinu, Hetjur hafsins, eftir Ragnar Bragason og Rými fyrir ást eftir Tyrfing Tyrfingsson. Fyrsta frumsýning ársins á Stóra sviðinu er hins vegar breska leikritið Högg. Nýtt verk um átakanlega lífsreynslu og von í myrkri, sem hefur sópað sér verðlaunum.

Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari. Við fengum heyra hvaða bækur hún hefur verið lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Laufey talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:

Ítölsku skáldkonurnar Dacia Maraini og Elsa Morante

Halldór Laxness, meira og minna allt hans höfundarverk

Fjallkirkjan e. Gunnar Gunnarsson

Astrid Lindgren og fíllinn Babar

Við heyrðum svo í lokin ljóðið Mynd eftir Þorstein frá Harmi af diskinum Ljóðið ratar til sinna í upplestri skáldsins.

Tónlist í þættinum í dag:

Góða ferð heim / Íkorni (Stefán Örn Gunnlaugsson)

Skák og mát / úr Ormstungu, Króli, Rán Ragnarsdóttir, Jakob van Oosterhout og Hallgrímur Ólafsson (Jóhannes Damian, texti Hafstein Níelsson og Ólíver Þorsteinsson)

Egils appelsín / Spilverk Þjóðanna (Spilverk Þjóðanna)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Birt

7. sept. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,