Mannlegi þátturinn

Leikárið í Borgarleikhúsinu, pistill frá Kaupmannahöfn 1949 og Elínborg lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn fór aftur í gang í dag eftir sumarfrí og þátturinn Sumarmál hefur runnið sitt skeið. Eins og undanfarin haust munum við á næstu mánudögum fara í svokallaðan leikhúsrúnt, þar sem við fáum heyra hvað verður á fjölum leikhúsanna í vetur. Við byrjuðum í dag á því ræða við Egil Heiðar Anton Pálsson Borgarleikhússtjóra og það sem verður þar á fjölunum í vetur.

Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, kom svo til okkar með gullmola úr safni RÚV, pistil frá árinu 1949 sem Geir Aðils, fréttaritari RÚV í Kaupmannahöfn sendi heim. Geir segir þar t.d. frá því þegar skömmtun var aflétt eftir Heimsstyrjöldina, Fegrunarfélagi Kaupmannahafnar og fleiru.

Og lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Elínborg Sturludóttir dómkirkjuprestur. Við fengum heyra hvaða bækur hún hefur verið lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina:

Systkinaerjurnar e. Moa Herngren

Kæri fáviti e. Virginie Despentes

Jakaranda e. Gael Faye

Salka Valka, Vefarinn mikli frá Kasmír og Sjálfstætt fólk

Tónlist í þættinum í dag:

Reykjavík / Spilverk þjóðanna (Spilverk Þjóðanna)

Þrisvar í viku / Bítlavinafélagið (Jón Ólafsson)

Greidd skuld er glatað / Fánar (Magnús R. Einarsson, Ásgeir Óskarsson og Haraldur Þorsteinsson)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Birt

31. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,