Mannlegi þátturinn

Ingibjörg ljósmóðir, kjarakönnun Einingar Iðju og vísindaspjallið með Eddu

Við kynntumst Ingibjörgu Eiríksdóttur ljósmóður, sérfræðingur í ljósmóðurfræðum og brjóstagjafaráðgjafa í þættinum í dag. Landspítalinn stóð fyrir heiðursmálþingi vegna starfsloka hennar sem sérfræðiljósmóður við spítalann og miðað við erindin sem þar voru flutt þá er óhætt segja hún hafi markað djúp spor í faginu og verið fyrirmynd og áhrifavaldur. Ingibjörg er brautryðjandi í umönnun og fræðslu í fjölburameðgöngum, fæðingum og brjóstagjöf á Landspítalanum. Við töluðum við Ingibjörgu á þessum tímamótum, fengum hana til rifja aðeins upp ferilinn og þróunina í faginu í þættinum.

Kjarakönnun sem Gallup framkvæmdi undir lok síðasta árs fyrir norðlenska stéttarfélagið Einingu Iðju sýnir vaxandi hlutfall félagsmanna hefur þurft neita sér um læknis- og tannlæknisþjónustu vegna kostnaðar og stór hluti þeirra sem eru með börn á leikskóla er ósáttur við breytingar á opnunartíma og/eða gjaldskrá þeirra og hafa neyðst til breyta vinnutíma sínum. Þá hefur hlutfall þeirra sem segjast eiga erfitt með greiða af lánum sínum ekki verið hærra síðan 2019 og yngra fólkið á sífellt erfiðara með búa sér mannsæmandi líf. Við ræddum við Tryggva Jóhannsson varaformann Einingar Iðju í dag.

Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur, í dag sagði hún okkur frá rannsókn sem bendir til þess sykurneysla fyrstu 1000 daga ævinnar (þ.m.t. á skeiði fósturþroska) getur haft neikvæð áhrif á hjarta og æðaheilsu. Edda útskýrði þetta betur fyrir okkur í þættinum.

Tónlist í þættinum í dag

Dag eftir dag / Múgsefjun (Eva Hafsteinsdóttir og Hjalti Þorkelsson)

Ævintýri / Hrekkjusvín (Leifur Hauksson)

Just Breathe / Willie Nelson & Lukas Nelson (Eddie Vedder)

Á rauðum sandi / Ylja (Guðný Gígja Skjaldardóttir, Bjartey Sveinsdóttir og Smári Tarfur Jósepsson)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Birt

25. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,