Kvöldfréttir útvarps

Uppsagnir borgarstarfsmanna, kosningar í Ísrael, Kristrún um símtal við Pútín og höfuðstöðvar lögreglu til Akureyrar?

Með uppsögnum sem ráðist hefur verið í hjá Reykjavíkurborg síðan í sumar sparast 2,3 milljarðar króna, segir borgarstjóri. Formaður Sameykis segir óboðlegt hvernig staðið var að uppsögnum 50 manns í dag.

Aldrei hafa fleiri kosið í þingkosningum í Ísrael en í dag. Þar eru raðir við kjörstaði og hægriblokkin vill að þeir verði opnir lengur. Stjórnarandstaðan segir að með þessari kröfu sé Netanyahu að búa sig undir að véfengja niðurstöðurnar.

Forsætisráðherra gerir, ólíkt danskri starfssystur sinni, ekki athugasemdir við að forsætisráðherrar Noregs og Finnlands hafi átt símtal við Vladimir Pútín um mögulegar leiðir til að binda enda á stríðið í Úkraínu.

Lög eldri en fimm ára hafa verið ráðandi í efstu sex streymisflokkum í Bretlandi á fyrri hluta þessa árs, þrátt fyrir að um hundrað þúsund ný lög séu send inn til streymisveitna á hverjum degi.

Umsjón: Stígur Helgason

Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Stjórn Útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir.

Þættir

,