Kvöldfréttir útvarps

Mótmæli í Frakklandi, breytingar á Loftbrú og Efling skoðar úrsögn úr ASÍ

Hundruð þúsunda mótmæla í Frakklandi í dag, flestir friðsamlega. Lögregla hefur handtekið að minnsta kosti þúsund og beitt táragasi víða.

Formaður umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis segir áhyggjur af boðuðum breytingum Loftbrúar skiljanlegar. Hún hafi sjálf efasemdir um hvort upphæð niðurgreiðslunnar dugi til. Flugfarþegar sem fréttastofa ræddi við sögðu breytinguna leggjast illa í sig.

Stjórn Eflingar hefur samþykkt að skoða ítarlega hvort félaginu sé betur borgið utan Alþýðusambands Íslands. Úttekt verður gerð á stöðu félagsins innan sambandsins næstu mánuði.

Bókasafnsfræðingur segir ekki hægt að mæla verðmæti bókasafna í útlánstölum og gestafjölda. Tillaga meirihluta menningarráðs Reykjavíkurborgar um Borgarbókasafn skjóti skökku við.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir.

Þættir

,