Kvöldfréttir útvarps

Bráðavistun barna, stórbruni í Kanada, sýknudómur Landsréttar og staða Jóns Gnarr í Viðreisn

Ekkert eftirlit er með börnum í bráðavistun á vegum barnaverndar. Félag fósturforeldra segir dæmi um að börn hafi verið í bráðavistun í átta ár – þrátt fyrir að hámarkið sé þrír mánuðir.

Fjórir eru látnir og tugir slasaðir eftir bruna í kanadískri herstöð. Yfirvöld rannsaka atvikið en segja ekkert benda til hryðjuverka.

Stjórnarformaður Vitundar segir Landsrétt senda þau skilaboð út í samfélagið að harkalegt kynlíf geti verið málsvörn í kynferðisbrotamálum. Landsréttur klofnaði á dögunum í afstöðu sinni í nauðgunarmáli.

Jón Gnarr, sem sagði sig úr þingflokki Viðreisnar í vikunni, útilokar ekki að segja sig úr flokknum og sitja sem óháður þingmaður.

Prófessor í stærðfræði segir marga innan fræðagreinarinnar uggandi yfir þeim framförum sem orðið hafa í gervigreind.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir.

Þættir

,