
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir.
Forseti Úkraínu vill þríhliða viðræður um stríðið í Úkraínu með forsetum Bandaríkjanna og Rússlands. Hann sat í dag fund með erindrekum Bandaríkjastjórnar í Osló.
Nýjar birtingarmyndir kynferðisofbeldis eru sláandi algengar meðal yngri kvenna. Dósent í lýðheilsuvísindum óttast að búið sé að normalísera ofbeldi í kynlífi.
Frambjóðendur Repúblikana snúast margir gegn Bandaríkjaforseta í afstöðu sinni til gagnavera, sem sprottið hafa upp eins og gorkúlur vestanhafs. Gagnaver eru orðin að brennheitu kosningamáli vestra þegar skammt er til kjördags.
Sigmenn ætla að kanna aðstæður í sprungunni sem Lúðvík Pétursson féll í í Grindavík í von um að finna jarðneskar leifar hans.
Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti í dag tillögu um að athuga mögulega aðkomu einkaaðila að rekstri Fjölskyldu- og húsdýragarðsins. Oddviti Sósíalistaflokksins gagnrýnir að verið sé að einkavæða almenningsgæði.
Umsjón: Erla María Markúsdóttir
Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Stjórn útsendingar: Nanna Guðrún Sigurðardóttir

Fréttir.