Kvöldfréttir útvarps

Litli spítalinn ehf. vill opna smáslysamóttöku, forstjóri CCEP (áður Vífilfell) um samkeppni á drykkjavörumarkaði, Norðurorka hækkar verð um 5-7%, Frakklandsforseti um beiðni Úkraínu um fjárstuðning, viðvörun vegna hvassviðris

Hópur heilbrigðisstarfsfólks vill opna smáslysamóttöku til að létta á bráðamóttöku Landspítala. Hann hefur óskað eftir samningi við Sjúkratryggingar en heilbrigðisráðuneytið segir enga peninga til.

Forstjóri drykkjarframleiðandans CCEP á Íslandi segir að fyrirtækið hafi orðið vart við ýmislegt á drykkjarvörumarkaðnum á Íslandi sem hafi vakið spurningar um heilbrigða viðskiptahætti.

Norðurorka hyggst hækka verð fyrir hita og rafmagn um rúmlega fimm prósent. Sveitarfélagið hét því nýverið að reyna að halda aftur af gjaldskrárhækkunum.

Frakklandsforseti segir að beiðni Úkraínuforseta um sjötíu milljarða evra stuðning verði tekin til skoðunar.

Veðurstofan hefur gefið út viðvaranir vegna hvassviðris, storms og roks um helgina. Veðurfræðingur biður fólk um að kanna aðstæður vel áður en það ferðast um landið.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir.

Þættir

,