
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir.
Listinn yfir íslenskar vefsíður og kerfi sem urðu berskjölduð vegna öryggisgalla í PHP-forritunarmálinu er langur, segir forstjóri Syndis. Vefir Strætó, Háskóla Íslands og Reykjavíkurborgar urðu meðal annars fyrir áhrifum.
Íslenskur kennari í Frakklandi segir að það hafi verið fyrirsjáanlegt að upp úr myndi sjóða í mótmælunum á laugardag. Krakkar sem hún kenndi séu í áfalli yfir framkomu lögreglunnar.
Nemendum í tíunda bekk grunnskóla verður gefin lokaeinkunn í tölustöfum í stað bókstafa í vor, verði áætlanir menntamálaráðherra að veruleika. Aðstoðarskólastjóri segir þetta illa ígrundað og að tímasetning innleiðingar sé óraunhæf.
Vísindamenn hafa uppgötvað áður óþekkta tegund fersk-vatns-snigils í helli í Kína. Sniglategundin hefur aðlagast myrkrinu með ýmsum hætti, meðal annars með því að losa sig við augun.

Fréttir.