
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir.
Þingflokksformaður Samfylkingarinnar segir sögulegan fjölda mála hafa verið samþykktan á vorþingi og gefur lítið fyrir gagnrýni minnihlutans á hve fá stjórnarfrumvörp hafi verið lögð fram á þingi í haust.
Bæjarstjórar á landsbyggðinni segja breytingar á Loftbrú fela í sér beina skerðingu á stuðningi við íbúa. Innviðaráðuneytið kynnti kerfisbreytingu fyrr í dag.
Danska lyfjafyrirtækið Novo Nordisk heldur úti lista yfir lækna og hjúkrunarfræðinga og flokkar þá eftir því hversu afkastamiklir þeir eru við að ávísa lyfjum fyrirtækisins. Listinn var afhjúpaður eftir netárás í sumar.
Öryggisgalli í PHP forritunarmálinu ógnar enn vefsíðum víða um heim. Fagstjóri hjá CERT-IS segir engin staðfest tilvik um innbrot út frá þessum veikleikum enn sem komið er.

Fréttir.