Kvöldfréttir útvarps

Gagnrýni á fá þingmál frá ríkisstjórnarflokkunum, breytingar á Loftbrú, listi Novo Nordisk yfir lækna og hjúkrunarfræðinga, Öryggisgalli í PHP forritunarmálinu

Þingflokksformaður Samfylkingarinnar segir sögulegan fjölda mála hafa verið samþykktan á vorþingi og gefur lítið fyrir gagnrýni minnihlutans á hve fá stjórnarfrumvörp hafi verið lögð fram á þingi í haust.

Bæjarstjórar á landsbyggðinni segja breytingar á Loftbrú fela í sér beina skerðingu á stuðningi við íbúa. Innviðaráðuneytið kynnti kerfisbreytingu fyrr í dag.

Danska lyfjafyrirtækið Novo Nordisk heldur úti lista yfir lækna og hjúkrunarfræðinga og flokkar þá eftir því hversu afkastamiklir þeir eru við að ávísa lyfjum fyrirtækisins. Listinn var afhjúpaður eftir netárás í sumar.

Öryggisgalli í PHP forritunarmálinu ógnar enn vefsíðum víða um heim. Fagstjóri hjá CERT-IS segir engin staðfest tilvik um innbrot út frá þessum veikleikum enn sem komið er.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir.

Þættir

,