Hljóðvegur 1

Hljóðvegur 1 - 16.september

Steiney sat í Efstaleitinu í dag en Jóhann Alfreð heimsótti stuðningsmenn Víkings og KA. Það var rífandi stemming á báðum liðum en þau etja kappi í úrslitaleik Mjólkurbikarsins. Jóhann náði tali af Árna Þór Freysteinssyni og Sverri Geirdal.

Þórdís Helgadóttir, ljóðskáld, stendur fyrir ljóðakvöldi í Mengi þar sem íransk-bandaríska ljóðskáldið Kaveh Akbar kemur fram.

Karna Sigurðardóttir og Kristín Andrea Þórðardóttir eru skipuleggjendur Skjaldborgarhátíðarinnar, heimildamyndahátíð sem haldin er á Patreksfirði um Hvítasunnuna á ári hverju. Um helgina var slegið upp lítilli útgáfu af hátíðinni í Bíó Paradís.

Frumflutt

16. sept. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hljóðvegur 1

Hljóðvegur 1

Umsjón: Steiney Skúladóttir og Jóhann Alfreð Kristinsson.

,