
Hádegisfréttir
Útvarpsfréttir.
Menntamálaráðherra segir áhyggjur af nýjum námsmatskvarða, úr bókstöfum í tölustafi, vera storm í vatnsglasi. Nægur tími sé til innleiðingar. Henni verði ekki frestað.
Ísraelar hafa fyrirskipað útgöngubann á Vesturbakkanum vegna árásar í morgun. Spenna er í Ísrael í aðdraganda kosninga á þriðjudag. Ráðherra hótar að örlög Vesturbakkans verði þau sömu og Gaza.
Lögregla fær að gera bíla náttúruspilla upptæka ef frumvarp umhverfisráðherra verður að lögum. Aðgerðir gegn utanvegaakstri verða hertar.
Sértækur byggðakvóti er áhrifaríkasta stjórnartækið til að efla sjávarbyggðir, samkvæmt nýrri rannsókn. Strandveiðar og línuívilnun komu lakast út.
Nú er hægt að hefja nám í dýralækningum á Íslandi. Vonast er til að við það fjölgi dýralæknum á landsbyggðinni.
Danir ætla að hætta minkarækt. Evrópusambandið skilgreinir mink sem ágenga tegund og hefur bannað ræktun hans,.

Útvarpsfréttir.