
Hádegisfréttir
Útvarpsfréttir.
Pólska þingið hefur samþykkt frumvörp um að afglæpavæða þungunarrof og fella úr gildi nánast algjört bann við því frá árinu 2020. Búist er við því að forsetinn beiti neitunarvaldi.
Nemendur í tíunda bekk grunnskóla fá lokaeinkunn í tölustöfum í stað bókstafa í vor, verði áætlanir menntamálaráðherra að veruleika. Frestur til umsagnar um breytingarnar í rennur út í dag.
Erindreki Bandaríkjaforseta á fund með forseta Rússlands í Sankti Pétursborg í dag. Fundur hans með Úkraínuforseta, sem var í Osló í gær, er sagður jákvæður.
Þrír hópar koma saman í hatrömmum mótmælum í Frakklandi að sögn sérfræðings í frönskum stjórnmálum. Stjórnvöld hafa kennt vinstri flokkum um ástandið.
Tekjur af Keldnalandi skila sér síðar inn í samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins en gert var ráð fyrir.
Bleiki dagurinn er í dag og eru landsmenn hvattir til að sýna þeim sem greinst hafa með krabbamein samstöðu.
Um þrjátíu mál ríkisstjórnarinnar eru komin í þingið af þeim 160 sem boðuð eru í þingmálaskrá í vetur. Fyrrverandi ráðherra skorar á þingforseta að beita sér.
Til skoðunar er að hefja ferjusiglingar milli Aberdeen í Skotlandi og Seyðisfjarðar. Sveitarstjóri Múlaþings segir mikinn áhuga fyrir verkefninu bæði hér og í Skotlandi og vonast til að það geti orðið að veruleika á næstu árum.
Svíar vilja meina Rússum inngöngu þegar HM í skíðaíþróttum verður þar á næsta ári. Ráðherra innflytjendamála í Svíþjóð segir lagalegar heimildir til skoðunar.

Útvarpsfréttir.