Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 20. október 2026

Franska lögreglan handtók í morgun mann sem er grunaður um að hafa kveikt í ráðhúsi Limoges, í óeirðunum á laugardag. Hann er sagður tengjast vinstriöfgasamtökum.

Sveitarstjórinn í Þingeyjarsveit á hlut í fyrirtæki sem selur búnað til skreiðarþurrkunar. Samherji kaupir meðal annars þennan búnað af fyrirtækinu fyrir verksmiðju sína á Laugum í Þingeyjarsveit.

Kona sem starfaði á hjúkrunarheimilinu Grenilundi á Grenivík hefur verið ákærð fyrir að svíkja nærri átta hundruð þúsund krónur af íbúa heimilisins.

Útvistun á rekstri Fjölskyldu- og húsdýragarðsins er til umræðu á borgarstjórnarfundi sem hófst á hádegi. Bein framlög borgarinnar til reksturs garðsins síðustu tíu ár nema þremur komma sex milljörðum króna.

Nýkrýndur Íslandsmeistari í bakgarðshlaupum bjóst ekki við sigri. Hann hljóp ríflega fjögur hundruð og sextíu kílómetra í veðurviðvörunum og myrkri.

Verðlaunahafar Norðurlandaráðs koma allir frá einu og sama landinu, Noregi. Það hefur aldrei gerst áður í sögu verðlaunanna.

Danskir þingmenn segja að ríkisútvarp landsins íþyngi foreldrum barna og skapi óþarfa stress um jólin, með útgáfu spila sem tengjast jóladagatali stöðvarinnar.

Grindavík steinlá gegn Breiðabliki í bikarkeppni karla í körfubolta í gærkvöldi. Grindvíkingar eru ríkjandi Íslandsmeistarar en Breiðablik keppir í næstefstu deild.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,