
Hádegisfréttir
Útvarpsfréttir.
Georg Páll Skúlason var kjörinn forseti ASÍ í morgun. Hann ætlar að leggja áherslu á góða samvinnu milli stéttarfélaganna.
Úkraínuforseti segir að evrópsk ríki búi yfir eldflaugavörnum sem þau geti látið Úkraínumenn fá. Þetta var rætt á fundi Zelenskys með leiðtogum Evrópusambandsins í morgun. Þar eru Úkraína og öryggi Evrópu efst á baugi.
Formaður Viðreisnar segist ekki ætla að eiga í orðaskiptum við Jón Gnarr um aðstæður innan þingflokksins sem hann sagði sig úr í gær.
Sprengjusveit var kölluð út vegna sprengjuhótunar sem barst forsætis- og dómsmálaráðuneytunum í vikunni. Hótanir voru sendar á fleiri stofnanir og fyrirtæki.
Skæð fuglaflensa hefur greinst víða um land. Yfirdýralæknir biður almenning að gæta að smitvörnum svo pestin berist ekki í fugla í haldi.
Kínverska norðurkljósarannsóknarstöði við Kárhól var rædd í þjóðaröryggisráði, vegna gruns um að þaðan væri hægt að stunda njósnir. Stjórnvöld segjast hafa fullan aðgang að byggingunni, tækjum og rannsóknargögnum.
Minnst 160 voru handteknir í mótmælum í Albaníu í gær. Mótmælendur krefjast afsagnar forsætisráðherra. Þetta var þriðja róstursama kvöldið í röð og mótmæli dagsins eru þegar hafin.

Útvarpsfréttir.