Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 14. október 2026

Landsmenn vöknuðu upp við fyrstu haustlægðina í morgun. Færð hefur víða spillst og þök hafa fokið á Siglufirði.

Verðmæti hlutabréfa í Beru, móðurfélagi Ölgerðarinnar, lækkaði í viðskiptum í Kauphöllinni í morgun. Fjallað var um viðskiptahætti Ölgerðarinnar í Kveik í gærkvöld. Samkeppniseftirlitið gerði húsleit hjá Beru á föstudag.

Frakkar ættu að skera niður framlög sín til Evrópusambandsins, segir Marine Le Pen, leiðtogi Þjóðfylkingarinnar og mögulega næsti forseti Frakklands. Leiðtogar flokka utarlega á hægri væng stjórnmálanna, þar á meðal Le Pen, verða í Brussel í dag.

Fráfarandi forseti Alþýðusambands Íslands hvetur til þess að kjaraviðræður hefjist strax. Þing ASÍ var sett í morgun.

Íranar hafa aukið þunga í árásum á skip á Hormússundi til að þrýsta upp olíuverði og baka þannig Trump Bandaríkjaforseta vandræði fyrir komandi þingkosningar

Margir mótmæla harðlega áformum stjórnvalda um innviðagjald á ferðamannastaði og segja um mismunun að ræða. Forstjóri Icelandair varar við því að hækkanir gjalda dragi úr ferðamannakomum.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,