
Hádegisfréttir
Útvarpsfréttir.
Formaður ASÍ segist orðlaus vegna ummæla varaseðlabankastjóra um að bankinn hafi skapað slaka í efnahagslífinu með tilheyrandi atvinnuleysi til að tryggja að kjarasamningar héldu.
Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna vilja herða refsiaðgerðir gegn Rússum vegna innrásar þeirra í Úkraínu, á sama tíma og Bandaríkjastjórn losar um tökin. Þetta kemur fram í drögum að sameiginlegri ályktun leiðtogafundar ESB sem hefst á fimmtudaginn.
Djúp lægð gengur yfir landið á morgun með gulum og appelsínugulum viðvörunum. Ekkert ferðaveður verður á norðvesturhluta landsins annað kvöld.
Dómsmálaráðherra hyggst ekki hverfa frá sameiningu lögregluembætta í þrjú, þrátt fyrir mótmæli. Markmiðið sé að efla lögregluna um allt land og lögreglumönnum fækki ekki.
Starfsemi dag- og göngudeildar geðdeildar Sjúkrahússins á Akureyri flyst á næstu vikum aftur inn á lóð sjúkrahússins. Hún hefur verið á hrakhólum vegna myglu- og rakaskemmda.
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mætir Króatíu í seinni leik liðanna í umspili um sæti á HM á Laugardalsvelli í dag. Ísland er í afar góðri stöðu eftir stórsigur ytra. Leikmenn segja stuðning á vellinum afar dýrmætan.

Útvarpsfréttir.