Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 6.september 2026

Erindrekar Bandaríkjaforseta eru komnir til Úkraínu eftir hafa átt langan fund með forseta Rússlands í gær. Forseti Úkraínu tók á móti þeim í Kyiv í morgun og á fund með þeim síðar í dag.

Félags- og húsnæðismálaráðherra segir stjórnvöld hafi ýmsar leiðir til verja kjarasamninga eftir forsendur þeirra brustu. Það verði þó aldrei á kostnað hallalausra fjárlaga.

Yfirlögregluþjónn á Suðurnesjum segist ekki muna eftir stærri Ljósanótt. Lögreglan segir hátíðin hafi farið vel fram en talsvert var þó um ölvun ungmenna, og eitt þeirra grýtti glerflösku í lögreglumann.

Formaður Samtaka smærri útgerða segir kjaraviðræðum við Sjómannasamband Íslands miða vel áfram. Áform innviðaráðherra um fella niður línuívilnun geri viðræðurnar þó flóknari.

255 ára skildingur frá nafntoguðum náttúrufræðingi kom óvænt í leitirnar í sumar þegar gönguhópur á ferð um Öræfin kom auga á hann. Skildingurinn er kominn á Þjóðminjasafn Íslands.

Birt

6. sept. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,