Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 3. september 2026

Rúmur helmingur flugmanna segist í könnun FÍA hafa sofnað við störf. Samgöngustofa metur niðurstöður könnunar á þreytu flugmanna í starfi og hvort bregðast þurfi við.

Heimurinn stendur frammi fyrir hættulegum öfgum í veðri, segir framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. El Niño verður öflugra í ár en nokkru sinni samkvæmt nýju mati Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar.

Yfirlögregluþjónn hjá embætti ríkislögreglustjóra segir tillögur lengingu hámarksgæsluvarðahlds í sex mánuði í samræmi við reynslu lögreglu af rannsóknum flókinna sakamála síðustu ár.

Gloria Steinem, ein af þekktustu baráttukonum fyrir jafnrétti og femínisma í Bandaríkjunum, er látin, 92 ára aldri.

Stjórnvöld í Frakklandi ætla skera upp herör gegn hraðtísku og leggja gjald á flíkur frá tískurisum eins og Shein, Temu og AliExpress. Gjaldið er frá hálfri evru fyrir nærföt upp í tólf fyrir jakka.

Risa-borgarísjakar lóna úti fyrir Hrauni á Skaga. Þeir brotna úr stórri íseyju sem kemur frá Grænlandi og hafa verið áberandi við strendur landsins í sumar.

Listi yfir þjóðarleiðtoga og aðra gesti sem verða við útför Haraldar Noregskonungs í næstu viku verður ekki birtur af öryggisástæðum.

Ljósanótt var sett í hellidembu í Keflavík í morgun.

Knattspyrnusamband Íslands hefur keypt hitapulsu á 40 milljónir. Hún heldur Laugardalsvelli leikfærum á veturna. Framkvæmdastjóri KSÍ segir þetta spara tugi milljóna, sambandið hefur leigt pulsuna dýrum dómum.

Birt

3. sept. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,